Viðskipti innlent

Enn eitt gjald­þrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni

Árni Sæberg skrifar
Frá vinstri: Helgi Magnús Hermannsson, Elís Árnason og Jóhannes Birgir Skúlason. Þeir Helgi Magnús og Jóhannes Birgir keyptu veitingarekstur af Elísi árið 2024 og myndin var tekin af því tilefni. Elís segist aldrei hafa fengið greitt.
Frá vinstri: Helgi Magnús Hermannsson, Elís Árnason og Jóhannes Birgir Skúlason. Þeir Helgi Magnús og Jóhannes Birgir keyptu veitingarekstur af Elísi árið 2024 og myndin var tekin af því tilefni. Elís segist aldrei hafa fengið greitt. Aðsend

Skiptum er lokið á þrotabúi Veislunnar ehf., sem rak samnefnda veisluþjónustu á Seltjarnarnesi um árabil. Ekki ein einasta króna fékkst upp í kröfur, sem námu tæpum 216 milljónum króna. Ekki er langt síðan greint var frá mörg hundruð milljóna króna gjaldþrotum félaga í eigu Helga Magnúsar Hermannssonar, sem einnig átti Veisluna.

Í auglýsingu þess efnis í Lögbirtingablaðinu segir að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum 14. maí 2025, hafi þrotabú Veislunnar verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Skiptum hafi verið lokið þann 30. september 2026, án þess að greiðslur fengjust upp í lýstar kröfur, sem hafi verið að fjárhæð 215.786.494 króna.

Slóð gjaldþrota

Eigandi Veislunnar, Helgi Magnús Hermannsson, hefur komið að rekstri fjölda veitingastaða í gegnum tíðina, oftast í félagi við Jóhannes Birgi Skúlason. Vísir fjallaði um gjaldþrot tveggja félaga sem voru í eigu þeirra í ágúst síðastliðnum.

Annars vegar var um félagið OL Restaurant & Sportbar ehf. að ræða en lýstar kröfur í þrotabú þess námu 167 milljónum króna. Félagið rak kaffihúsið Adesso til fjölda ára í Smáralind og Sport & Grill um nokkurra ára skeið í sömu verslunarmiðstöð. Eigandi þeirra staða seldi þeim Helga og Jóhannesi félagið árið 2024 og þeir opnuðu TGI Fridays þar sem Sport & Grill hafði verið.

Tvö í tengslum við Grillhúsið

Hitt félag þeirra Helga og Jóhannesar sem skiptum lauk á nýverið var Búsendi ehf. Það hét áður Grillhúsið ehf. en þeir keyptu Grillhúsið árið 2024. Félagið rak þá samnefnda staði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu námu kröfur í búið alls 208 milljónum króna, án þess að nokkuð fengist upp í þær.

Framangreind gjaldþrot eru ekki þau einu sem tengjast viðskiptafélögunum. Skiptum á þrotabúi Tanksins ehf., sem hélt um tíma utan um eignarhald þeirra á TGI Fridays og Grillhúsinu, lauk í júní í fyrra. Þá fékkst ekkert upp í 277 milljóna kröfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×