Neytendur

Bein út­sending: Frétta­maður tekur strætó á Kefla­víkur­flug­völl

Bjarki Sigurðsson skrifar
Förin hefst við Fjörðinn í Hafnarfirði, þar sem ásinn stoppar einmitt oft á dag.
Förin hefst við Fjörðinn í Hafnarfirði, þar sem ásinn stoppar einmitt oft á dag. Vísir/Vilhelm

Hversu einfalt og þægilegt er að taka strætó á Keflavíkurflugvöll nú þegar vagninn ekur farþegum alveg upp að flugstöðinni? Fréttastofa kannar málið í beinni útsendingu og ræðir við gesti og gangandi.

Í gær hóf leið 55, sem ekur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar, að aka að nýrri stoppustöð sem er mun nærri flugvellinum en sú sem áður var notuð. Mikil óánægja hefur verið með fyrirkomulagið og ferðamenn gagnrýnt aðgengismál.

Klukkan 10:30 hefst bein útsending í spilaranum hér fyrir neðan þar sem fréttamaður tekur strætó frá Hafnarfirði til Keflavíkur og til baka og kannar þennan nýja möguleika þegar ferðast á úr landi. 

Rætt verður við fulltrúa frá Vegagerðinni, Isavia og ferðamenn.

Hér fyrir neðan verður hægt að horfa á útsendinguna þegar hún hefst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×