Ferðaþjónusta
1 2 3 4 5 6 … 176 ›
Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Björgunarsveitin Berserkir var kölluð út í hádeginu í dag vegna ferðafólks sem hafði lent utan vegar á Snæfellsnesi, rétt austan Stykkishólms. Bíll þeirra fór hálfur í kaf og sat fólkið á þakinu þegar björgunarsveit náði til þeirra. Fólkið var flutt í Stykkishólm. Innlent 11.3.2026 17:37
Fleiri gætu kallað eftir því að fá Hringveginn Starfshópur sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði leggur til að Vestfjarðahringurinn verði skilgreindur sem hluti af Hringveginum, það er þjóðvegi númer eitt. Fordæmi er þegar komið frá Austurlandi. Innlent 11.3.2026 11:10
Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Síðustu sex árin hefur íslenska krónan oftar en ekki sveiflast minna en ýmsir aðrir gjaldmiðlar, þar á meðal bandarískur dollar, Evran og breska pundið. Íslenska krónan hefur því ekki verið stór áhrifavaldur í því verðbólguástandi sem Íslendingar fást við í dag heldur sinnt sínu hlutverki vel sem fljótandi gjaldmiðill sem mýkir hagsveiflur. Viðskipti innlent 10.3.2026 08:54
Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður „Það er alltaf góður díll í dag að kaupa félagið og leggja það niður. Það er auðvitað það sem gerir það hættulegt þjóðaröryggislega séð að þetta gæti verið freistnivandi fyrir einhverja aðila að skoða það einfaldlega að leysa félagið upp,“ segir Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair. Viðskipti innlent 9.3.2026 21:45
Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Smíði bílastæðahúss við Leifsstöð er ekki forgangsmál hjá Isavia á næstum árum. Yfirmaður flugvallarþróunar og innviða Keflavíkurflugvallar hafnar því að Isavia okri á bílastæðum. Innlent 9.3.2026 20:19
Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Dorrit Moussaieff segir besta tímann til að ferðast til Abu Dhabi, höfuðborgar Sameinuðu arabísku furstadæmanna, vera einmitt núna, þrátt fyrir að landið sé nú í fréttum vegna átaka í Miðausturlöndum og flugskeytaárása Írana. Lífið 6.3.2026 22:03
Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Landeigendur við Reynisfjöru hafa gert bráðabirgðaráðstafnir eftir að mikill öldugangur og stórstreymi eyðilögðu meðal annars öryggisbúnað, viðvörunarskilti og útsýnispall í síðustu viku. Innlent 6.3.2026 13:23
Hraðlygni leiðsögumaðurinn ekki einsdæmi: „Ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur“ „Það má gera ráð fyrir því að það séu fleiri og fleiri tugir — ef ekki hundruð — svona aðilar sem eru starfandi á Íslandi,“ segir Þór Bínó, varaformaður deildar leiðsögufólks hjá VR, um mál bresks karlmanns sem vísað var úr landi eftir að hafa starfað sem leiðsögumaður án atvinnu- og dvalarleyfis og svo logið ítrekað að lögreglu um ferðir sínar á Íslandi. Innlent 4.3.2026 18:05
Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Fertugur breskur karlmaður af kínverskum uppruna fær ekki að koma aftur til Íslands næstu tvö árin eftir að hafa starfað hér á landi sem leiðsögumaður án leyfis. Maðurinn var gripinn við eftirlit lögreglu og reyndust svör hans við spurningum lögreglu loðin í meira lagi. Innlent 4.3.2026 10:59
Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Hópur eigenda og ábúenda á jörðum nærri þjóðgarðinum í Skaftafelli var ekki talinn eiga hagsmuni sem gæfi honum aðild til þess að krefjast þess að framkvæmdir við tugi gistihýsa yrðu stöðvaðar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði kæru þeirra frá í síðustu viku. Innlent 3.3.2026 08:57
Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Neytendastofa hefur sektað Norðursiglingu ehf. um eina og hálfa milljón króna fyrir að auglýsa umhverfisvænar hvalaskoðanir með óskýrum hætti. Fullyrðingar um umhverfisáhrif fyrirtækisins þyrftu að vera sannreynanlegar. Norðursiglingum hefur verið bannað að nota fullyrðingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir. Neytendur 26.2.2026 14:12
Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Ferðamálastofa telur að Háifoss í Þjórsárdal gæti orðið einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á komandi árum. Það sé meðal annars vegna þess að fossinn birtist í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things. Innlent 26.2.2026 10:22
Rúta lenti utan vegar Rúta á vegum Reykjavík Excursions sem var á leið til Reykjavíkur lenti utan vegar nærri Litlu kaffistofunni síðdegis í dag. Engum varð meint af og er búið að ferja farþega rútunnar í borgina. Þetta segir Björn Ragnarsson, forstjóri fyrirtækisins, sem lýsir erfiðum akstursskilyrðum á svæðinu. Innlent 25.2.2026 18:47
Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Fyrir þá fjölmörgu Íslendinga sem elska golfíþróttina er fátt skemmtilegra en að skipta vetrarkuldanum út fyrir sól, þægilega hafgolu og fagurgræna golfvelli í Suður Evrópu. Á meðan dimmir dagar og frost ráða ríkjum heima býðst kylfingum að leika á glæsilegum völlum á Spáni, í Portúgal eða á Gran Canaria þar sem aðstæður eru eins og best verður á kosið. Lífið samstarf 25.2.2026 11:23
Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Björgunarsveitarfólk á Austurlandi hafði í nægu að snúast í hvassviðri og kófi í gærkvöldi. Fjórtán manns í smárútu sem lenti utan vegar í Fagradal var komið til aðstoðar og ferðafólki í nokkrum bílum á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Innlent 25.2.2026 08:08
„Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Afbrotafræðingur nefnir tvær ástæður fyrir því að Íslendingar vilji í ítrekuðum mæli fækka innflytjendum hérlendis, annars vegar popúlisma og hins vegar ákall landsmanna eftir breytingum vegna fjöldans. Leiðrétt tölfræði um brotamenn með erlent ríkisfang séu áhugaverð en túlkun gagnanna krefjist þekkingar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist ekki ætla að láta þagga niður í sér með dylgjum um menntunarstig. Innlent 24.2.2026 15:40
Velta heilsulinda jókst töluvert Hagstofa Íslands mældi markverða lækkun á veltu í ferðaþjónustu í lok árs 2025, að undanskildum heilsulindum þar sem veltan hafi aukist töluvert. Tólf baðlón eru starfandi á landinu. Viðskipti innlent 24.2.2026 12:51
Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Þremur blaðamönnum sem voru fastráðnir á ritstjórn Reykjavík Grapevine var sagt upp störfum í gær. Útgefandi blaðsins segir uppsagnir einu færu leiðina þar sem reksturinn sé í járnum. Viðskipti innlent 24.2.2026 11:13
Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Gríðarleg ölduhæð var við Reynisfjöru í morgun í stórstreymi og segir leiðsögumaður að útsýnispallur og gangvegur við fjöruna séu að mestu horfnir á braut. Þá er annað skiltið auk þess horfið á braut. Innlent 23.2.2026 21:08
Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Rúta full að ferðamönnum rann út af veginum við Reynisfjall í morgun. Engin meiðsl urðu á fólki. Innlent 22.2.2026 13:41
Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Kona sem sofnaði undir stýri hópferðabifreiðar sem lenti utan vegar sunnan við Blönduós árið 2023 var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna áverka sem þrír farþegar hlutu í slysinu. Innlent 20.2.2026 14:53
Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Viðvarandi markaðssetning stjórnvalda í ferðaþjónustu hefur ekki verið til staðar frá árinu 2023 og fjárframlög minnkuð, segir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Setja þurfi í samhengi hvernig ferðaþjónusta hér á landi hefur breyst á síðustu árum. Viðskipti innlent 20.2.2026 14:13
Noregur er bara betri áfangastaður! Flug er ein merkasta uppgötvun 20. aldar og hefur haft ótrúleg áhrif á hagkerfi og velsæld um allan heim. Rekstur flugfélaga og leiðarval hefur orðið sín eigin grein sem hefur mikil áhrif á viðskipti og framleiðslu í heiminum. Skoðun 20.2.2026 12:32
Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Atvinnurekandi í ferðaþjónustu, sem sagði upp starfsmanni eftir að hann ók bíl fyrirtækisins sviptur ökuréttindum tvívegis, þarf ekki að greiða starfsmanninum skaðabætur vegna uppsagnarinnar. Ekki var fallist á að riftun á ráðningarsamningi án undangenginnar samningsbundinnar áminningar vegna brotanna hafi verið ólögmæt. Innlent 19.2.2026 21:01
Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Vatnsborð í Laugarvatnshver sem sér Laugvetningum fyrir heitu vatni lækkaði vegna framkvæmda við heilsulindina Fontana í síðustu viku. Brugðist var við með því að hægja á rennsli til sundlaugarinnar í bænum. Innlent 19.2.2026 14:31
Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda. Viðskipti innlent 19.2.2026 06:45
Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps segist engar skoðanir hafa á nýjum eiganda að hundrað prósenta hluta í fimm stjörnu lúxushóteli sem er í uppbyggingu á Grenivík. Sá hafi áður átt hlut í verkefninu, engin eðlisbreyting hafi átt sér stað og telur sveitarstjórinn að bjartir tímar séu framundan með uppbyggingunni. Innlent 18.2.2026 06:48
Vinkonuferð til Íslands tók óvænta stefnu Avery Francis fór í stelpuferð til Íslands, eftir ár sem hún lýsir sem því versta í sínu lífi. Skipbrot í starfi, kulnun og áföll í einkalífi höfðu tekið sinn toll og hún hafði verið einhleyp í sex ár. Hún var ekki að leita að sambandi. Síðasta kvöldið í ferðinni kynntist hún íslenskum manni í miðbæ Reykjavíkur og þar kviknaði eitthvað óvænt. Þau hittust aftur ári síðar, og það fyrir einskæra tilviljun. Nú eru þau hjón og Avery býr hér og skipuleggur kvennaferðir til Íslands, sem hún kallar besta stað í heimi. Lífið 16.2.2026 09:01
Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Erlendur ferðamaður sem féll tæpa tuttugu metra við foss nærri Selvallavatni á Snæfellsnesi var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Þrátt fyrir hátt fall var maðurinn með meðvitund. Innlent 13.2.2026 14:51
Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Vísbendingar eru um gerviverktöku meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra samkvæmt vinnustaðaeftirliti ASÍ. Þeir sem starfi sem slíkir séu með skerta réttarstöðu og tapi á grundvallarréttindum. Tugir ferðaþjónustufyrirtækja voru ekki skráð á fyrirtækjaskrá Skattsins. Innlent 12.2.2026 14:46