Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Freyja Þórisdóttir skrifar 17. október 2026 07:03 Gagnaverið At-north á Íslandi birti nýlega leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagnaverum var líkt við hótel fyrir tölvur. Hótel At-North er samkvæmt henni, frábær og framsækinn vinnustaður fyrir ólíkar starfstéttir og störfin heilmörg. Enda í nógu að snúast við að sinna gestunum, tölvum sem þurfa að hafa það notalegt, kalt og þurrt, virkar tengingar og hæfilegt pláss. „Og gestirnir okkar borða rafmagn“, sagði talskona At-North. Myndlíkingin um tölvurnar sem hótelgesti er mjög góð. En þvílíkir gestir og þvílíkt át. Eitt gagnaver getur étið rafmagn á við allan almenning í landinu. Þau eru líka drykkfelld, plássfrek, valda ónæði og eru frek á náttúruna á ýmsan hátt. Nú er í bígerð að reisa nýtt gagnaver á Bakka við Húsavík, sem borðar lítil 120 mw. Það er orka sem jafnast á við uppsett afl vindorkuversins í Vaðöldu, þegar allar 28 túrbínurnar verða komnar upp. Stjórnlaust og stefnulaust í Noregi „Hvernig getið þið verið á móti gagnaverum þegar þið notið 40 slík á hverjum degi‘“ sagði forsætisráðherra Noregs í umræðum um gervigreindar/gagnaverabyltinguna í Noregi á dögunum. Samt óttast almenningur um náttúruna og hækkandi raforkuverð. Sumir norskir stjórnmálaflokkar vilja stöðva uppbygginguna. Aðrir vilja takmarkanir og krafist er stefnu strax. Gríðarleg fjölgun gagnavera með tilheyrandi orkuvinnslu er því hitamál í Noregi. Samkvæmt Hagstofu Noregs (Statistisk sentralbyrå) voru fyrir mánuði 26 starfandi gagnaver í landinu og fjögur stór í byggingu. En hvorki meira né minna en 116 GAGNAVER bíða leyfis til uppsetningar. Kröfur um að láta staðar numið koma úr ólíkum áttum. Með þeim rökum að gagnaver séu orkusugur á þröngum markaði, valdi náttúruspjöllum, tæmi vatnsból, skapi fá störf og kalli á fleiri og stærri vindorkuver. Flest séu þau reiknivélar kínverskra og bandarískra tæknirisa, sem komi norsku samfélagi ekki að gagni. Nýleg skýrsla tækniráðs Noregs staðfestir afar takmarkaðan ávinning samfélagsins af rekstri gagnavera og finnsk skýrsla sýnir sömu niðurstöður. Gríðarleg andstaða er við gagnaverauppbyggingu á Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum vilja menn gjarnan losna við þau til annarra landa. Hvað vill Ísland? Hvar eru okkar skýrslur? Hvað viljum við með gagnaver á Íslandi? Ríkisstjórnin vill fjölga gagnaverum á Íslandi og staðfestingu þess má finna í atvinnustefnu. En hvaða gögn og fyrir hverja? Gervigreindargagnaverin taka endalaust til sín. Það hlýtur að vera grundvallaratriði að gagnaver á Íslandi geymi samfélagslega mikilvæg gögn, og í forgangi séu gögn sem íslenska þjóðin þarf á að halda, en ekki bara hvað sem er. Á Íslandi er tilviljanakennt hvaða vitneskju við höfum um gagnaverin. Upplýsingar um þessa nýstárlegu hótelgesti eru helst í formi viljayfirlýsinga og fyrirtækjakynninga sem kallaðar eru fréttir. Yfirsýn yfir bókunarstöðu tölvuhótelanna fram í tímann er ekki öllum ljós og þaðan af síður vitum við hvað gagnaverin okkar eru að geyma eða reikna. Eru það Tik Tok myndbönd, klám, hernaðarupplýsingar, eða eitthvað sem skiptir okkur máli. Við getum ekki skorast undan uppbyggingu á vettvangi gagnavera og gervigreindar. En að byggja upp stefnulaust, með því að taka við öllum þeim gagnaverum sem aðrir vilja ekki sjá hjá sér, er glórulaust. Við höfum víðtæka og vonda reynslu af því að byggja upp stefnulaust. Nægir að nefna sjókvíaeldið og loðdýraræktina, en margt annað mætti tína til. Það hefur alltaf verið varasamt að leyfa markaðnum einum að ráða stefnunni. Í þessu tilfelli er það stórhættulegt. Ætli ég verði ekki bara að spyrja gervigreind í gagnaveri til þess að fá einhver svör um hvert stefnir hér á Íslandi í risabransa sem heimsbyggðin talar um á hverjum degi. Og verð ég einhverju nær? Af mörgu sem gagnlegt væri að fá svör við er: Hvað erum við til í að leggja á náttúruna fyrir þessa óseðjandi gesti og hvað er í lagi að virkja mikið fyrir gagnaversiðnaðinn? Getum við tryggt að gagnaver geymi gagnleg gögn? Hvernig samræmist óheft sala orku til gagnavera, orkuöryggi, orkuskiptum og sanngjörnu orkuverði til almennings? Náttúra Íslands á betra skilið en stefnulausa uppbyggingu orkufrekasta iðnaðar nútímans. Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Gagnaver Hótel á Íslandi Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Skoðun Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Sjá meira
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun