Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar 16. október 2026 07:31 Við Íslendingar erum í þekkingaruppbyggingu þessa dagana í öryggis og varnarmálum. Höfum við nú þegar séð að öryggis og varnarmál snerta víðari grunn en við töldum áður og þarft er að gera áætlanir og fjárfesta. Ákvarðanir sem við munum taka í öryggis-, varnar- og löggæslumálum á næstunni eru mikilvægar, kostnaðarsamar og snerta alla landsmenn. Drónar eru gott dæmi um þróun umræðunnar um öryggis-, varnar- og löggæslumál yfir á ný svið. Þar er á ferðinni nýleg tækni sem þjónar bæði borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi, svokallað tvíþætt notagildi (dual-use). Tækni sem nýtist við leit og björgun, eftirliti með innviðum, við löggæslu og í atvinnulífinu svo sem í smalamennsku á haustin, en líka í stríðsátökum og sem ógnartæki. Drónar snerta þess vegna á fjölmörgum starfssviðum; tölvunarfræði, verkfræði, lögfræði, nýsköpun og öryggismál allt í senn. Vegna þess hve nýtt sviðið er þá eru engar rótgrónar hefðir um hverjir eigi heima við borðið. Því er ánægjulegt að í næstu viku fari fram ráðstefna um dróna í Háskólanum í Reykjavík þar sem fólk úr ólíkum áttum stígur á stokk. Þar verða innlendir og erlendir fulltrúar löggæslu, iðnaðar, hugveitna, akademískra rannsókna og notenda að ræða tækifæri og áskoranir sem dróna tækni færir okkur í íslensku og alþjóðlegu samhengi, í nýsköpun og fyrir atvinnulífið. Áhersla verður lögð á þrennt, fyrsta lagi samþættingu dróna í samfélaginu, öðru lagi tvíþætt notagildi dróna og í þriðja lagi notkun dróna í raun. Robert Fintak mun flytja aðal erindið sem fjallar um frá dróna frá vígvelli til seiglu, hvernig ómönnuð kerfi með tvíþætt notkunargildi eru að endurskilgreina öryggi Evrópu. Robert er forstjóri og stofnandi fyrirtækja sem sérhæfa sig í ómönnuðum og sjálfvirkum kerfum, and-dróna tækni, vélmennum og vernd mikilvægra innviða. Róbert er einnig forseti pólska viðskiptaráðsins um ómönnuð kerfi (PISB) en Pólland er framarlega í drónatækni í Evrópu. Hvet ég sérstaklega konur að skrá sig til leiks og taka þátt í umræðunni en ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem starfa við eða hafa áhuga á öryggismálum, vörnum, löggæslu, nýsköpun eða notkun dróna hvort sem er í opinberum rekstri, einkageiranum eða akademíu til þess að skoða hagnýta reynslu, nýjungar, rannsóknarniðurstöður og þarfir notenda. Vonandi sjáumst við á Nauthól og Háskólanum í Reykjavík en nauðsynlegt er að skrá sig hérna. Höfundur er alþjóðastjórnmálafræðingur og situr í stjórn kvenna í alþjóðaöryggismálum (WIIS Iceland). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hernaður Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Við Íslendingar erum í þekkingaruppbyggingu þessa dagana í öryggis og varnarmálum. Höfum við nú þegar séð að öryggis og varnarmál snerta víðari grunn en við töldum áður og þarft er að gera áætlanir og fjárfesta. Ákvarðanir sem við munum taka í öryggis-, varnar- og löggæslumálum á næstunni eru mikilvægar, kostnaðarsamar og snerta alla landsmenn. Drónar eru gott dæmi um þróun umræðunnar um öryggis-, varnar- og löggæslumál yfir á ný svið. Þar er á ferðinni nýleg tækni sem þjónar bæði borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi, svokallað tvíþætt notagildi (dual-use). Tækni sem nýtist við leit og björgun, eftirliti með innviðum, við löggæslu og í atvinnulífinu svo sem í smalamennsku á haustin, en líka í stríðsátökum og sem ógnartæki. Drónar snerta þess vegna á fjölmörgum starfssviðum; tölvunarfræði, verkfræði, lögfræði, nýsköpun og öryggismál allt í senn. Vegna þess hve nýtt sviðið er þá eru engar rótgrónar hefðir um hverjir eigi heima við borðið. Því er ánægjulegt að í næstu viku fari fram ráðstefna um dróna í Háskólanum í Reykjavík þar sem fólk úr ólíkum áttum stígur á stokk. Þar verða innlendir og erlendir fulltrúar löggæslu, iðnaðar, hugveitna, akademískra rannsókna og notenda að ræða tækifæri og áskoranir sem dróna tækni færir okkur í íslensku og alþjóðlegu samhengi, í nýsköpun og fyrir atvinnulífið. Áhersla verður lögð á þrennt, fyrsta lagi samþættingu dróna í samfélaginu, öðru lagi tvíþætt notagildi dróna og í þriðja lagi notkun dróna í raun. Robert Fintak mun flytja aðal erindið sem fjallar um frá dróna frá vígvelli til seiglu, hvernig ómönnuð kerfi með tvíþætt notkunargildi eru að endurskilgreina öryggi Evrópu. Robert er forstjóri og stofnandi fyrirtækja sem sérhæfa sig í ómönnuðum og sjálfvirkum kerfum, and-dróna tækni, vélmennum og vernd mikilvægra innviða. Róbert er einnig forseti pólska viðskiptaráðsins um ómönnuð kerfi (PISB) en Pólland er framarlega í drónatækni í Evrópu. Hvet ég sérstaklega konur að skrá sig til leiks og taka þátt í umræðunni en ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem starfa við eða hafa áhuga á öryggismálum, vörnum, löggæslu, nýsköpun eða notkun dróna hvort sem er í opinberum rekstri, einkageiranum eða akademíu til þess að skoða hagnýta reynslu, nýjungar, rannsóknarniðurstöður og þarfir notenda. Vonandi sjáumst við á Nauthól og Háskólanum í Reykjavík en nauðsynlegt er að skrá sig hérna. Höfundur er alþjóðastjórnmálafræðingur og situr í stjórn kvenna í alþjóðaöryggismálum (WIIS Iceland).
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun