Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar 16. október 2026 15:32 Skattaárátta ríkisstjórnarinnar bitnar illa á Suðurkjördæmi. Boðaður er sérstakur skattur á ferðamannastaði í Bláskógabyggð, sem mun hafa áhrif langt út fyrir sveitarfélagið. Auk þess stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón, sem eru langflest á Suðurlandi og eru burðarásinn í uppbyggingu þar á síðustu árum. Þá er ótalin hækkun á kílómetragjaldi sem kemur verst niður á landsbyggðinni. Sveitarstjórnarfólk í uppsveitum Árnessýslu hefur undanfarna daga rætt við ráðamenn. Frasinn „við heyrum hvað þið eruð að segja“ glymur í eyrum, en tilfinningin eftir þessa fundi er að ekki sé tekið mark á þeim rökum sem færð eru fram gegn þessum ótrúlegu áformum. Ráðuneytin vinna ekki saman, enginn hefur heildarmyndina, heldur veltist hver um í sínu sílói og hlustar á bergmál eigin raddar. Einnig heyrist að „þetta hafi alltaf staðið til“ og ekki átt að koma neinum á óvart. Það stenst ekki, ríkisstjórnin tók sérstaklega fram að ekki stæði til að hækka skatta á ferðaþjónustuna. Bláskógabyggðarskatturinn er eitthvað sem enginn ætti að hafa haft hugmyndaflug til að leggja fram og á ekkert skylt við hugleiðingar um almennt komugjald eða auðlindagjald. Að ráðast á þrjá ferðamannastaði í einu og sama sveitarfélaginu er alger firra. Slíkt felur í sér stórfellda röskun á samkeppnisstöðu fyrirtækja. Í stað þess að nýta hugmyndir Samtaka ferðaþjónustunnar um að stækka kökuna og vinna að því að ferðamenn stoppi lengur á landinu þá virðist stefnt að því að mylja kökuna niður, engum til hagsbóta. Sumir álíta að það sé heppni að Suðurland sé vinsæll áfangastaður ferðamanna. Það er misskilningur, uppbyggingin á rætur hjá dugmiklu fólki, sem hefur tekið áhættu og haft kjark til að byggja upp og þróa hágæða þjónustu, flest í fjölskyldufyrirtækjum sem hafa byrjað sem litlir sprotar en vaxið og dafnað. Suðurland horfir fram á ástand sem jafna má til hamfara. Einstaklingar hafa lagt mikið undir fjárhagslega við uppbyggingu, sveitarfélög hafa lagt sitt af mörkum til að taka við íbúafjölgun sem hefur fylgt vexti ferðaþjónustunnar, lagt götur, sótt heitt og kalt vatn í iður jarðar, endurbætt íþróttamannvirki og stækkað leik- og grunnskóla. Allt til að bæta og auka lífsgæði og allt stendur þetta höllum fæti ef ráðast á í aðgerðir þær sem ríkisstjórnin boðar; aðgerðir sem raska samkeppni og er ekki hægt að túlka öðruvísi en sem árás á ferðaþjónustu á afmörkuðu svæði. Ég skora á þingmenn Suðurkjördæmis að láta til sín taka og koma í veg fyrir þessa fordæmalausu, ósanngjörnu og óskiljanlegu aðför að kjördæminu. Höfundur er sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skattaárátta ríkisstjórnarinnar bitnar illa á Suðurkjördæmi. Boðaður er sérstakur skattur á ferðamannastaði í Bláskógabyggð, sem mun hafa áhrif langt út fyrir sveitarfélagið. Auk þess stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón, sem eru langflest á Suðurlandi og eru burðarásinn í uppbyggingu þar á síðustu árum. Þá er ótalin hækkun á kílómetragjaldi sem kemur verst niður á landsbyggðinni. Sveitarstjórnarfólk í uppsveitum Árnessýslu hefur undanfarna daga rætt við ráðamenn. Frasinn „við heyrum hvað þið eruð að segja“ glymur í eyrum, en tilfinningin eftir þessa fundi er að ekki sé tekið mark á þeim rökum sem færð eru fram gegn þessum ótrúlegu áformum. Ráðuneytin vinna ekki saman, enginn hefur heildarmyndina, heldur veltist hver um í sínu sílói og hlustar á bergmál eigin raddar. Einnig heyrist að „þetta hafi alltaf staðið til“ og ekki átt að koma neinum á óvart. Það stenst ekki, ríkisstjórnin tók sérstaklega fram að ekki stæði til að hækka skatta á ferðaþjónustuna. Bláskógabyggðarskatturinn er eitthvað sem enginn ætti að hafa haft hugmyndaflug til að leggja fram og á ekkert skylt við hugleiðingar um almennt komugjald eða auðlindagjald. Að ráðast á þrjá ferðamannastaði í einu og sama sveitarfélaginu er alger firra. Slíkt felur í sér stórfellda röskun á samkeppnisstöðu fyrirtækja. Í stað þess að nýta hugmyndir Samtaka ferðaþjónustunnar um að stækka kökuna og vinna að því að ferðamenn stoppi lengur á landinu þá virðist stefnt að því að mylja kökuna niður, engum til hagsbóta. Sumir álíta að það sé heppni að Suðurland sé vinsæll áfangastaður ferðamanna. Það er misskilningur, uppbyggingin á rætur hjá dugmiklu fólki, sem hefur tekið áhættu og haft kjark til að byggja upp og þróa hágæða þjónustu, flest í fjölskyldufyrirtækjum sem hafa byrjað sem litlir sprotar en vaxið og dafnað. Suðurland horfir fram á ástand sem jafna má til hamfara. Einstaklingar hafa lagt mikið undir fjárhagslega við uppbyggingu, sveitarfélög hafa lagt sitt af mörkum til að taka við íbúafjölgun sem hefur fylgt vexti ferðaþjónustunnar, lagt götur, sótt heitt og kalt vatn í iður jarðar, endurbætt íþróttamannvirki og stækkað leik- og grunnskóla. Allt til að bæta og auka lífsgæði og allt stendur þetta höllum fæti ef ráðast á í aðgerðir þær sem ríkisstjórnin boðar; aðgerðir sem raska samkeppni og er ekki hægt að túlka öðruvísi en sem árás á ferðaþjónustu á afmörkuðu svæði. Ég skora á þingmenn Suðurkjördæmis að láta til sín taka og koma í veg fyrir þessa fordæmalausu, ósanngjörnu og óskiljanlegu aðför að kjördæminu. Höfundur er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun