Innlent

Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ferðamennirnir komust úr sjónum heilir á höldu.
Ferðamennirnir komust úr sjónum heilir á höldu. Samsett

Ferðamenn komust í hann krappan í Reynisfjöru síðdegis í dag eftir að stór alda lenti á þeim. Viðbragðsáætlun hefur verið virkjuð í Reynisfjöru vegna veðursins.

Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þar sem sjá má hvernig stór alda lendir á fjórum ferðamönnum, þar á meðal tveimur börnum, sem stóðu í fjörunni. 

Ferðamennirnir virðast hafa sloppið óskaddaðir en rennandi blautir. 

Heiðrún birti myndskeiðið upprunalega á Facebook og lýsir því hvernig hún hafi reynt að tala við annað par með ungan strák með sér til að vara þau við hættunni. Parið hafði hins vegar talið Heiðrúnu vera furðulega.

Landeigendur Reynisfjöru sendu frá sér tilkynningu fyrr í dag og sögðu að viðbragðsáætlun hefði verið virkjuð vegna hárrar ölduhæðar. Lokað var fyrir aðgengi að hluta strandarinnar og gæsla komin á vettvang. 

„Í dag mynduðust hættulegar aðstæður fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Því miður var viðbragðsáætlun virkjuð of seint og lokun og gæsla voru ekki komnar á fyrr en um kl. 15:30. Við munum draga lærdóm af þessu og kappkosta að vera fyrr á ferðinni þegar slíkar aðstæður myndast,“ stóð í tilkynningunni.

Oft á tíðum hefur verið fjallað um hættulegar aðstæður sem geta skapast í Reynisfjöru. Fjöldi myndskeiða er til af ferðamönnum sem lenda í öldunum en landeigendur hafa sett upp viðvörunarskilti í því skyni að vara ferðamenn við hættunum sem kunna að skapast. 

Þrátt fyrir það kemur það ítrekað fyrir að ferðamenn fari fram hjá hliði og viðvörunarskilti og virða þau að vettugi.

Níu ára gömul stúlka frá Þýskalandi lést eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru í ágúst árið 2025. Einnig lést erlendur karlmaður á áttræðisaldri sumarið 2022 þegar alda hreif hann með sér út í sjó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×