Viðskipti innlent

Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið

Agnar Már Másson skrifar
Ásar eru móðurfélag Símans.
Ásar eru móðurfélag Símans. Vísir/Vilhelm

Ásar, áður Síminn, og Samkeppniseftirlitið hafa hafið sáttaviðræður vegna kaupa fyrirtækisins á Opnum kerfum og Öryggismiðstöðvar Íslands eftir að Samkeppniseftirlitið taldi nauðsynlegt að hlutast til í kaupunum.

Í september andmælti Samkeppniseftirlitið kaupum Ása á öllu hlutafé í Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands og taldi í sínu frummati að íhlutun vegna kaupanna væri nauðsynleg. 

Nú greina Ásar frá því í kauphallartilkynningu að Samkeppniseftirlitið hafi samþykkt ósk Ása um sáttaviðræður vegna málsins.

Vegna þessa hafi frestur Samkeppniseftirlitsins til að ljúka rannsókn á kaupunum á ÖMÍ framlengst sjálfkrafa um fimmtán virka daga, og er nú til 30. október í stað.

Frestur til að ljúka rannsókn vegna kaupanna á OK er eftir sem áður 4. nóvember, segir í tilkynningunni en að lokum segir að félagið muni greina frá framvindu málsins eftir því sem tilefni er til.

Tilkynnt var um kaupin við lok árs í fyrra og að Síminn hefði keypt fyrirtækin fyrir fjórtán milljarða. Áætlað var að áætlað að árlegur rekstrarhagnaður Símans myndi aukast um 2,3 milljarða þegar samlegðaráhrifin vegna viðskiptanna væru að fullu komin fram. Fjallað var ítarlega um málið í Innherja að neðan.

Andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins fól ekki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun heldur var það sagt liður í meðferð málsins og gefa félaginu kost á að koma á framfæri skýringum, athugasemdum og gögnum áður en ákvörðun er tekin. Endanleg afstaða eftirlitsins til kaupanna liggur því enn ekki fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×