Viðskipti innlent

Klíníkin sótti 300 milljónir króna

Árni Sæberg skrifar
Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar.
Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar. Vísir/Bjarni

Klíníkin Ármúla lauk í september 300 milljóna króna hlutafjáraukningu og náðist þar með markmið aukningarinnar að fullu. Auk þess seldi félagið eigin hluti fyrir um 23 milljónir króna til 13 starfsmanna, sem eignuðust samtals tveggja prósenta hlut í félaginu. Fyrr á árinu bættust jafnframt níu starfandi læknar í hluthafahópinn.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að hlutafjáraukningin styrki fjárhagslegan grunn félagsins og skapi aukið svigrúm til frekari vaxtar. Fjármagnið verði meðal annars nýtt til að efla og stækka starfsemina en stefnt sé að því að taka tvær nýjar skurðstofur í notkun í byrjun árs 2027. Núverandi hluthafar hafi tekið þátt í aukningunni, en nýir eigendur hafi jafnframt bæst í hópinn með kaupum á eigin hlutum Klíníkurinnar. Alls séu eigendur félagsins nú 44, þar á meðal fjölmargir starfandi læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn.

Klíníkin hafi stækkað verulega á síðasta ári. Um mitt ár 2025 hafi félagið flutt í nýtt og stærra húsnæði að Ármúla 7–9. Rekstrartekjur Klíníkurinnar hafi numið um 2,7 milljörðum króna árið 2025 og aukist um 11,4 prósent frá fyrra ári.

„Við erum afar ánægð með niðurstöðuna. Það er mikilvægt fyrir okkur að núverandi hluthafar sýni Klíníkinni traust og sérstaklega ánægjulegt að sjá starfsfólk fjárfesta sjálft í félaginu. Að baki Klíníkinni stendur nú breiður eigendahópur, þar á meðal fjölmargir starfsmenn og læknar, sem er tilbúinn að styðja við áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Með tveimur nýjum skurðstofum aukum við afkastagetuna og verðum vel í stakk búin til að sinna fleiri aðgerðum í takt við eftirspurn og þörf. Það skiptir miklu máli að nýta þá miklu þekkingu og getu sem er til staðar í íslensku heilbrigðiskerfi og þannig gera fleiri sjúklingum kleift að fá þjónustu hér heima og fyrr,“ er haft eftir Kristjáni Jóni Jónatanssyni, framkvæmdastjóra Klíníkurinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×