Heilbrigðiseftirlit

Fréttamynd

Heil­brigðis­eftir­lit á heima í nær­um­hverfinu

Tvö umdeild frumvörp liggja fyrir Alþingi sem snúa að því að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annað er um Stofnun atvinnuveganna og hitt um einföldun regluverks og aukin skilvirkni með eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum.

Skoðun
Fréttamynd

For­sætis­ráð­herra talar um virðingu, en hvað með starfs­fólk heil­brigðis­eftir­litsins?

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur lagt mikla áherslu á virðingu í stjórnmálum. Hún hefur talað um mikilvægi fagmennsku, samráðs og þess að hlusta á fólk sem býr yfir þekkingu og reynslu. Hún hefur einnig gagnrýnt stjórnmál sem byggja á yfirgangi, vanvirðingu og ákvarðanatöku langt frá þeim sem málin varða. Í ljósi þess er erfitt að skilja hvernig staðið hefur verið að áformum ríkisstjórnarinnar um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.

Skoðun
Fréttamynd

Raun­hæf leið til að bæta heil­brigðis­eftir­lit

Tvö umdeild frumvörp liggja fyrir Alþingi sem snúa að því að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annað er um Stofnun atvinnuveganna hjá atvinnuveganefnd og hitt um einföldun regluverks og aukin skilvirkni með eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum hjá umhverfis- og samgöngunefnd.  

Skoðun
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opin­bert eftir­lit

Í grein hér á Vísi fjalla þeir Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ, Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um fyrirkomulag opinbers eftirlits . Þar lýsa þeir yfir stuðningi við þá hugmynd að eftirlit verði „samræmt“ með því að færa það frá sveitarfélögunum yfir til ríkisstofnanna.

Skoðun
Fréttamynd

Mis­skilningur um sam­ræmingu heil­brigðis­eftir­lits

Í gær skrifuðu Benedikt S. Benediktsson, Jóhannes Þór Skúlason og Sigurður Hannesson grein um fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiseftirliti á Íslandi fyrir hönd Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka iðnaðarins. Í grein sinni fullyrða þeir að ósamræmi í heilbrigðiseftirliti sé of mikið og á þeim grundvelli lýsa þeir yfir stuðningi við umdeilt frumvarp umhverfisráðherra.

Skoðun
Fréttamynd

Sættust um bikbreiðuna

Fulltrúar Heilbrigðiseftirlitsins og Malbikunarstöðvarinnar Höfða náðu sátt um hvað skyldi gera við stóra bikbreiðu á svæði sem var áður starfssvæði stöðvarinnar. Til stóð að endurnýta efnið en því verður fargað.

Innlent
Fréttamynd

Sundur­tætt eftir­lit – opið bréf til alþingis­manna

Í dag virkar heilbrigðiseftirlit á Íslandi þannig að einn eftirlitsaðili (heilbrigðisfulltrúi) fer í eftirlit í leikskóla, veitingastaði, kaffihús, skemmtistaði, hótel, bensínstöðvar, matvöruverslanir og sundlaugar svo fátt eitt sé nefnt. Í eftirlitinu er farið yfir starfsemina frá A til Ö í sömu heimsókninni

Skoðun
Fréttamynd

Sam­ræmt eftir­lit er betra eftir­lit

Alþingi hefur tækifæri til að stuðla að samræmi, skilvirkni og trausti gagnvart eftirliti. Almenn umræðan um þetta tækifæri hefur verið takmörkuð þó málið sé stórt.

Skoðun
Fréttamynd

Hver borgar brúsann?

Okkur er sagt að markmiðið með fyrirhuguðum breytingum á heilbrigðiseftirliti sé einföldun, samræming og aukin skilvirkni. Það eru góð markmið. En áður en Alþingi samþykkir svo umfangsmikla kerfisbreytingu þarf að liggja skýrt fyrir hvað hún kostar og hver á að borga. Það liggur ekki fyrir í dag.

Skoðun
Fréttamynd

Land­læknir braut á deildar­stjóra réttargeðdeildar

Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi deildarstjóra réttar- og öryggisdeildar Landspítalans 800 þúsund krónur í miskabætur vegna brots á persónuverndarlögum. Landlæknir greindi Geðhjálp frá því að deildarstjórinn hefði verið settur í ótímabundið leyfi í tengslum við alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á öryggis- og réttargeðdeildum Landspítalans.

Innlent
Fréttamynd

Flug­völlur er ekki bara upp á punt

Innviðaráðherra hyggst láta greina hvort gullhúðun Evróputilskipana hafi átt sér stað þegar íslenskum flugvöllum var gert að fá bæði starfsleyfi og rekstrarleyfi. Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur er sökuð um að fara langt út fyrir valdheimildir sínar með því að reyna að þrengja að Reykjavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Gullhúðun að flug­vellir þurfi starfs­leyfi heil­brigðis­eftir­lits

Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar.

Innlent
Fréttamynd

Nýju fötin keisarans – Ein­faldað í þykjustunni

Á heimasíðu stjórnarráðsins er tilvitnun í ummæli Jóhanns Páls Jóhannsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um að til standi að einfalda regluverk og að starfsleyfisskyldu hafi þegar verið létt af 16 flokkum atvinnustarfsemi.

Skoðun
Fréttamynd

Myndaveisla: Hundar og kettir vel­komnir síðan árið 2017

Hundar og kettir eru leyfilegir inn á veitingahús og kaffihús í Reykjavík, þó með því skilyrði að rekstraraðilar staðanna tilkynni heilbrigðisnefnd Reykjavíkur að þeir kjósi að nýta sér heimildina sem kveður á um í reglugerð Heilbrigðiseftirlitsins.

Lífið
Fréttamynd

Viljum við ekki örugga leik­skóla?

Það skiptir foreldra öllu máli að börnin okkar fái að alast upp, leika og læra í öruggu og heilnæmu umhverfi. Því miður er það svo í samfélaginu okkar að þrátt fyrir þær forvarnir sem við höfum byggt upp þá geta hlutir farið úrskeiðis eins og nýleg atvik hafa minnt okkur á. 

Skoðun
Fréttamynd

Heitur matur í boði á ný

Reykjavíkurborg hefur gert samning við fyrirtækið Krydd og Kavíar um framleiðslu máltíða sem dreift verður í heimahús, félagsmiðstöðvar og þjónustuíbúðir velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Enginn matur hefur verið í félagsmiðstöðvum borgarinnar eftir að listeríusmit kom upp í eldhúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Prófessor slær á áhyggjuraddir

Gylfi Magnússon, hagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ekki nokkra leið að fá það út, miðað við forsendur frumvarps ráðherra um tengingu bóta við launavísitölu, að breytingin eigi eftir að stefna fjárhag ríkisins í hættu. Annað mál sé þó hversu óskýrt orðalagið sé varðandi það hvað eigi að gera þegar laun hækka en það sé auðvelt að breyta því.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Enn enginn matur á boð­stólum félags­miðstöðvanna

Reykjavíkurborg hefur ekki fengið neinar upplýsingar um staðfest smit vegna listeríu-sýkingar sem kom upp í framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi í byrjun mánaðar. Enginn heitur matur hefur verið í boði í félagsmiðstöðvum borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Mat­vælaöryggi og for­varnir

Matarsýkingar geta haft dýrkeyptar afleiðingar, einkum fyrir neytendur en ekki síður fyrir starfsfólk og rekstur fyrirtækja. Allt of oft má rekja slík atvik til ónógrar áherslu á forvarnir í matvælakeðjunni. Þetta á jafnt við um frumframleiðslu, vinnslu, verslanir og stóreldhús.

Skoðun
Fréttamynd

Dul­búinn geð­þótti um­hverfis­ráðherra

Þegar Jóhann Páll Jóhannsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti með pompi og prakt að hann ætlaði að leggja niður heilbrigðiseftirlit á Íslandi var gefið í skyn að áformin byggðu á faglegum forsendum.

Skoðun