Viðskipti innlent

Ráðinn sviðsstjóri og stað­gengill for­stjóra Fastus

Atli Ísleifsson skrifar
Stefán Þór Arnarsson.
Stefán Þór Arnarsson.

Stefán Þór Arnarsson hefur tekið til starfa hjá Fastus sem sviðsstjóri og staðgengill forstjóra.

Í tilkynningu segir að Stefán hafi hafið störf hjá Fastus þann 1. september síðastliðinn og muni leiða Fastus Heilsu sem sé heilbrigðissvið Fastus.

„Stefán hefur yfir 20 ára reynslu úr lyfja- og heilbrigðisgeiranum m.a. frá Actavis, Medis og Coripharma. Síðustu fimm ár starfaði Stefán hjá Coripharma, meðal annars við viðskiptaþróun og seinast sem framkvæmdastjóri vörustjórnunar. Þar kom hann að fjölbreyttum verkefnum á sviði fyrirtækjasölu, vörustjórnunar og nýmarkaðssetningar lyfja viðskiptavina Coripharma,“ segir í tilkynningunni. 

Fram kemur að í nýju starfi muni Stefán leiða heilbrigðissvið Fastus og bera ábyrgð á stefnumótun, þróun og rekstri sviðsins. Stefán er með BSc-gráðu í vörustjórnun og hefur í gegnum feril sinn öðlast víðtæka reynslu af heilbrigðis- og lyfjageiranum, alþjóðlegum birgðakeðjum, viðskiptaþróun og stjórnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×