Haukar

Haukar

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Haukum í Hafnarfirði.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Við nutum þess í botn að vera þarna“

Sara Björk Gunnarsdóttir er snúin aftur heim til Hauka úr atvinnumennskunni. Hún hefur verið valin Íþróttamaður ársins tvisvar og er sigursælasti íslenski leikmaður sögunnar. Hún fékk móttöku við hæfi í knatthúsi Hauka.

Fótbolti
Fréttamynd

Mynda­syrpa: Sara Björk snýr heim

Sara Björk Gunnarsdóttir er að snúa heim til Hauka úr atvinnumennsku. Hún mun verða leikmaður Hauka sem og sinna afreksþjálfun félagsins. Haldinn var blaðamannafundur í knatthúsi Hauka þar sem okkar maður Vilhelm Gunnarsson var með myndavélina á lofti.

Fótbolti
Fréttamynd

Amandine: Ein­víginu er ekki lokið

Amandine Toi fór mikinn í fjórða leik Hauka og Njarðvíkur í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld. Hún skoraði 17 stig og síðustu stig leiksins til að tryggja sínum konum áframhald í keppninni á sunnudaginn næsta. Haukar unnu leikinn 77-69.

Körfubolti
Fréttamynd

Upp­gjör: Haukar - Njarð­vík 77-69 | Haukar lifa

Njarðvík tókst ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna fyrr í kvöld. Haukar sáu til þess að úrslitaeinvígið fari í fjóra leiki allavega. Heimakonur læstu varnarleiknum algjörlega og fóru með 77-69 sigur. Fjórði leikurinn verður á sunnudag í Njarðvík.

Körfubolti
Fréttamynd

„Þeir eru bara dóna­legir og rífast til baka“

Emil Barja, þjálfari Hauka, var að vonum ósáttur með frammistöðu síns liðs í kvöld en hann var þó fyrst og fremst ósáttur með frammistöðu dómaranna að þessu sinni og fannst halla töluvert á sínar konur.

Sport
Fréttamynd

„Mér er drullusama um þessa töl­fræði“

Það var augljóslega þungt yfir Emil Barja þegar hann mætti til viðtals strax að loknum leik Hauka og Njarðvíkur. Haukar töpuðu leiknum með tólf stigum og elta í þessu úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn.

Körfubolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Kefla­vík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn

Haukar sýndu mátt sinn og megin þegar liðið bar sigurorð af Keflavík, 72-98, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í Blue-höllinni í Keflavík í kvöld. Haukar fara þar af leiðandi með 3-1 sigur af hólmi í einvígi liðinna og eru komnir í úrslit þar sem liðið mætir annað hvort Njarðvík eða Grindavík.

Körfubolti