Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Andri Broddason skrifar 16. september 2026 21:49 Haukar sitja á toppi Olís-deildar karla með fullt hús stiga. Anton/Vísir Æsispennandi leikir voru í Olís-deild karla í handbolta í dag þegar næstum heil umferð fór fram. Haukar rétt unnu Aftureldingu og Selfoss og Stjarnan þurftu að deila saman stigum.
Selfoss tók á móti Stjörnunni í frekar kaflaskiptum leik. Stjarnan byrjaði leikinn betur og var liðið snemma komið í fimm marka forystu og virtust Garðbæingar vera sterkara liðið í leiknum. Selfyssingar gáfust þó ekki upp og minnkuðu forskotið smátt og smátt og aðeins var tveggja marka munur á liðunum í hálfleik. Leikurinn varð jafn þegar Jónas Karl Gunnlaugsson kom Selfoss yfir þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af leiknum. Í næstu sókn náði Tandri Már Konráðsson að jafna metin og hvorugt liðið náði að bæta við öðru marki og endaði leikurinn jafn 34-34. Ísak Logi Einarsson var markahæsti leikmaður leiksins með tólf mörk fyrir Stjörnuna. Hákon Garri Gestsson var næstmarkahæsti leikmaður leiksins en hann skoraði tíu mörk fyrir Selfoss. Haukar sóttu toppsætið Í Hafnarfirði tóku Haukar á móti Aftureldingu þar sem við tók spennandi viðureign. Haukar tóku forystuna snemma í leiknum en Afturelding var þó aldrei langt undan. Í hálfleik voru Haukar með þriggja marka forskot á gestina og ljóst að Afturelding þurfti að bæta sína frammistöðu til að sækja sigur. Gestirnir náðu þó aldrei að ná Haukum og endaði leikurinn með tveggja marka sigri Hauka, 32-30. Freyr Aronsson, leikmaður Hauka, var markahæsti leikmaður leiksins með þrettán mörk og komu fimm þeirra af vítalínunni. Hákon Daði Styrmisson, leikmaður Aftureldingar, var næstmarkahæsti leikmaður leiksins með átta mörk. FH náði öruggum sigri FH tók á móti Víkingi í Kaplakrika í kvöld þar sem leikurinn var ágætlega jafn til að byrja með. FH-liðið var með forystuna en erfitt var fyrir liðið að stinga Víkinga af. Í hálfleik var FH með fjögurra marka forskot en það voru möguleikar fyrir Víkinga að minnka það niður. Það reyndist ekki gerast og var lið FH mun sterkara í seinni hálfleik og enduðu heimamenn á að vinna öruggan sex marka sigur 40-34. Jón Karl Einarsson, leikmaður Víkings, og Ágúst Guðmundsson, leikmaður FH, voru báðir með tíu mörk hvor. Ómar Darri Sigurgeirsson hjá FH var næstmarkahæstur með níu mörk. Eftir leikina sitja Haukar á toppi deildarinnar með fullt hús stiga en Fram getur náð þeim en leik liðsins sem átti að vera í kvöld var frestað. FH situr því í öðru sæti deildarinnar með fimm stig.
Olís-deild karla Haukar FH UMF Selfoss Afturelding Stjarnan Víkingur Reykjavík Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira