Körfubolti

Sara Rún öflug í sigri KR

Aron Guðmundsson skrifar
Sara Rún í leik með KR gegn Val fyrr á tímabilinu
Sara Rún í leik með KR gegn Val fyrr á tímabilinu Vísir/Pawel

KR og Haukar unnu leiki sína í sjöttu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Boðið var upp á spennandi leik í Vesturbænum.

Það hefur mikið gengið á hjá liði Tindastóls upp á síðkastið og var leikur kvöldsins gegn KR sá fyrsti undir stjórn nýs þjálfara, Hlyns Freys Einarssonar, sem tók við þjálfun liðsins eftir að Israel Martin var látinn fara. 

Leikur kvöldsins var lengi vel spennandi og aðeins eitt stig skildi liðin að fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. 

Þar reyndust heimakonur í liði KR sterkari og sigldu þær að lokum heim fimm stiga sigri, 83-78. 

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæsti leikmaður KR í leik kvöldsins með 22 stig, þá tók hún 5 fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Í liði Tindastóls var Florencia Natalia Chagas atkvæðamest með þrjátíu stig. 

Um fjórða sigur KR í fyrstu sex leikjum liðsins í Bónus deildinni var að ræða. Liðið því með átta stig í efri hluta deildarinnar en Tindastóll er með fjögur stig í 7.sæti.

Ármann enn í leit að sigri

Í Laugardalshöllinni unnu Haukakonur svo sautján stiga sigur, 95-78 á heimakonum í liði Ármanns. 

Ármann leiddi með fimm stigum í hálfleik en sterkur seinni hálfleikur sá til þess að Haukar sneru leiknum sér í vil og unnu að lokum góðan sigur.

Diamond Alexis Battles var stigahæsti leikmaður vallarins með 25 stig fyrir Ármann en Tinna Guðrún Alexandersdóttir fylgdi henni fast á hæla með 24 stig en hún reif einnig niður fjögur fráköst og gaf sex stoðsendingar. 

Um fjórða sigur Hauka í fyrstu sex leikjum liðsins í Bónus deildinni er að ræða. Liðið er nú með átta stig líkt og Njarðvík í þriðja og fjórða sæti deildarinnar en Njarðvík á leik til góða á morgun gegn Grindavík. 

Ármann er án stiga, líkt og Fjölnir, á botni deildarinnar og hefur tapað öllum sínum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×