Körfubolti

Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tíma­bilsins

Andri Broddason skrifar
Jada Guinn byrjaði tímabilið vel gegn nýliðunum í Fjölni.
Jada Guinn byrjaði tímabilið vel gegn nýliðunum í Fjölni. Diego/Vísir

Haukar tóku á móti Fjölni í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna þar sem Haukar unnu stórsigur 96-65. Nýliðarnir í Fjölni áttu erfiða byrjun og sá liðið aldrei til sólar eftir það.

Það tók langan tíma fyrir Fjölni að skora sín fyrstu stig í leiknum en Haukar voru búnir að skora 24 stig áður en Fjölnir var búið að skora sitt fyrsta. Það var því strax ljóst að erfitt væri fyrir nýliðana að koma til baka eftir svona slæma byrjun.

Eftir að hafa skapað sér gott forskot gat lið Hauka andað léttar og sigldi liðið sigrinum þægilega heim. Ekki munaði miklu á liðunum það sem eftir var leiks en Haukar voru þó með yfirhöndina.

Undir lok leiks náði Fjölnir að skora fleiri stig en Haukar en heimakonur voru farnar að hvíla leikmenn undir lokin fyrir komandi álag í deildinni.

Tinna Alexandersdóttir var stigahæst í leiknum með 24 stig og Sólrún Inga Gísladóttir var stuttu á eftir henni með 20 stig. Báðar eru þær leikmenn Hauka en stigahæsti leikmaður Fjölnis var Arna Rún Eyþórsdóttir með 19 stig. Hún tók einnig átta fráköst og var besti leikmaður Fjölnis í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×