Körfubolti

Martin frá­bær í sigur­leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Martin Hermannsson einbeittur í einvíginu við Bayern.
Martin Hermannsson einbeittur í einvíginu við Bayern. Getty/Reinaldo Coddou

Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin unnu í kvöld Frankfurt, 94-83, í nokkuð opnum körfuboltaleik.

Martin átti mjög góða frammistöðu en hann skoraði 10 stig og gaf 8 stoðsendingar auk þess sem hann lék aðeins í tuttugu mínútur í leiknum.

Alba Berlin vann deildina á síðasta tímabili eftir lygilega úrslitakeppni þar sem segja má að þeir hafi alltaf farið lengri leiðina.

Liðið hefur nú spilað tvo leiki á tímabilinu og unnið þá báða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×