Handbolti

Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi

Sindri Sverrisson skrifar
Sandra Erlingsdóttir sallaði inn mörkum fyrir ÍBV í dag í sætum sigri.
Sandra Erlingsdóttir sallaði inn mörkum fyrir ÍBV í dag í sætum sigri. vísir/Ernir

Haukar eru á toppnum og ÍBV í 2. sæti eftir leiki efstu liðanna í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.

Haukakonur eru áfram með fullt hús stiga eftir sex leiki en þær unnu fimm marka sigur á ÍR-ingum á Ásvöllum í dag, 33-28, eftir að hafa verið 17-16 yfir í hálfleik.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst Hauka með níu mörk úr aðeins tíu skotum en Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sjö mörk úr fjórtán skotum, þar af þrjú af vítalínunni, og Sonja Lind Sigsteinsdóttir sjö mörk úr ellefu skotum.

Hjá ÍR var landsliðskonan Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með heil tíu mörk úr sextán skotum en Karen Tinna Demian kom næst með sex mörk úr ellefu skotum.

Ellefu mörk Sóldísar ekki nóg í Eyjum

Spennan var enn meiri í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV vann eins marks sigur gegn Fram, 30-29, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik, 16-16.

Sandra Erlingsdóttir var áberandi að vanda og skoraði tíu mörk fyrir Eyjakonur eða tvöfalt fleiri en Birna Berg Haraldsdóttir sem kom næst. Hjá gestunum var Sóldís Rós Ragnarsdóttir markahæst með heil ellefu mörk og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði sjö.

Valskonur halda sig nærri toppnum

Eftir sigurinn er ÍBV áfram aðeins tveimur stigum á eftir Haukum en Fram, ÍR og Valur koma svo næst með átta stig, fjórum stigum frá toppnum.

Valskonur unnu nefnilega fimm marka sigur gegn Gróttu í dag, 26-21, eftir að hafa verið 11-10 yfir í hálfleik.

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Guðrún Hekla Traustadóttir skoruðu fimm mörk hvor fyrir Val og voru markahæstar en Katrín S Scheving Thorsteinsson var markahæst Gróttu með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×