Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við

Þór og KA mætast í fyrsta sinn í 22 ár í efstu deild síðar í dag. Uppselt varð á leikinn á tveimur klukkustundum og Þórsarar unnið hörðum höndum við að bæta við stæðum til að fleiri komist að. KA vann báða leiki liðanna í Símadeildinni sálugu árið 2002.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sagan með Val en KR á flugi

Margur bíður spenntur eftir laugardagskvöldinu þegar erkifjendurnir Valur og KR eigast við í toppslag Bestu deildar karla í fótbolta á Hlíðarenda. Saga undanfarinna ára er með Val í liði en KR vann leik liðanna í bikarnum á dögunum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Gætu endað í þyrlu til Eyja

Forráðamenn Breiðabliks eru með það til skoðunar að koma leikmönnum með þyrlu til Vestmannaeyja á sunnudag, fyrir leikinn við ÍBV í Bestu deild karla, vegna óvissunnar um samgöngur til Eyja.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Breiða­blik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópa­vogi

Breiðablik lagði Fram, 2-0, á Kópavogsvelli í 2. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Mörk frá Líf Joostdóttur van Bemmel og Barbáru Sól Gísladóttur tryggðu Blikum sigurinn eftir markalausan fyrri hálfleik. Breiðablik er því með fullt hús stiga eftir sigurinn á meðan Fram er enn án stiga eftir tvö töp.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við hlógum bara að því“

Elías Már Ómarsson hefur farið á kostum með Íslandsmeisturum Víkings í byrjun tímabilsins í Bestu deild karla. Framherjinn er kominn með fimm mörk eftir fjórar umferðir, hlær að myndasendingum og hefur bara gaman af neikvæðu umtali í hlaðvörpum.

Íslenski boltinn