Íslenski boltinn

Ás­geir Páll kveður Kefla­vík og Ís­land

Sindri Sverrisson skrifar
Ásgeir Páll Magnússon í baráttunni við Amin Cosic í vor. Amin flutti til Noregs í sumar og Ásgeir hefur ákveðið að halda einnig af landi brott.
Ásgeir Páll Magnússon í baráttunni við Amin Cosic í vor. Amin flutti til Noregs í sumar og Ásgeir hefur ákveðið að halda einnig af landi brott. vísir/Viktor

Keflavík hefur misst lykilmann úr liðinu sem hafnaði í 6. sæti Bestu deildar karla í fótbolta í ár. Ásgeir Páll Magnússon hefur ákveðið að halda af landi brott.

Keflvíkingar tilkynntu þetta í dag og þökkuðu Ásgeiri fyrir hans störf síðustu fimm keppnistímabil.

Hann kom til Keflavíkur að austan, frá Leikni Fáskrúðsfirði, fyrir tímabilið 2022 og lék alls 140 leiki fyrir Keflavík og skoraði í þeim tíu mörk.

Ásgeir Páll var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni í fyrra eftir að Keflavík vann sig upp í Bestu deildina og bakvörðurinn var svo áfram í lykilhlutverki í sumar þegar Keflvíkingar komu öllum á óvart og enduðu í efri hluta Bestu deildarinnar.

„Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Ásgeiri Páli kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta í framtíðinni. Það þarf fólk eins og þig Ásgeir!“ segir í tilkynningu Keflvíkinga á samfélagsmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×