Íslenski boltinn

Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óskar Hrafn Þorvaldsson brýndi fyrir sínum mönnum að halda einbeitingu og klára tímabilið vel, sem hans menn gerðu með glæsibrag.
Óskar Hrafn Þorvaldsson brýndi fyrir sínum mönnum að halda einbeitingu og klára tímabilið vel, sem hans menn gerðu með glæsibrag. Vísir/Pawel

KR-ingar enduðu Íslandsmótið með því að skora átta mörk í fimm marka sigri á Blikum í Vesturbænum í lokaleik sínum og urðu því bæði fyrsta liðið til að skora bæði yfir áttatíu og níutíu mörk á einu tímabili í efstu deild á Íslandi.

KR-ingar höfðu samt að litlu að keppa í leiknum enda þegar búnir að tryggja sér annað sætið í deildinni. Liðið setti engu að síður á svið markasýningu og hjálpaði fyrirliða sínum Aroni Sigurðarsyni að slá markametið með sínu 21. og 22. marki í Bestu deildinni. KR endaði með því að skora 93 mörk í 27 leikjum eða 3,4 mörk að meðaltali í leik.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, fór með liðið úr fallbaráttu í titilbaráttu á einu ári og ef marka má viðtölin við hann eftir lokaleikinn þá á ekkert að stíga af bensíngjöfinni í Vesturbænum. Það mátti líka heyra á ræðu hans inni í búningsklefa fyrir leikinn á móti Blikum.

KR-ingar leyfðu fylgjendum samfélagsmiðla sinna að vera fluga á vegg inni í klefa og sýndu þessa ræðu þjálfara síns sem má hlusta á hér fyrir neðan.

„Við erum það sem við erum í dag. Sýnum úr hverju við erum gerðir. Sýnum að þó að það sé þannig lagað ekkert upp á að spila. Ekki sæti, ekki neitt, nema bara stoltið, virðingin og vitneskjan um það að við erum að fara halda áfram,“ sagði Óskar Hrafn í ræðu sinni.

„Við erum ekki hættir og við erum ekki saddir. Við ætlum ekki að leggjast á meltuna, hafa það ógeðslega gott í vetur og koma svo eins og einhverjir sem eru búnir að meika það,“ sagði Óskar

„Hver einasti leikur og hver einasta f-g mínúta sem við eyðum saman verður að vera vel nýtt. Akkúrat núna byrjar næsta tímabil. Núna. Það byrjar í dag, eins fáránlega og það hljómar þá gerir það það,“ sagði Óskar

„Við erum að byggja á hverjum einasta degi og við höfum ekki efni á því að sóa einum einasta degi,“ sagði Óskar Hrafn en það má sjá ræðuna hans hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×