Íslenski boltinn

Rúnar Páll kynnti teymið sitt

Valur Páll Eiríksson skrifar
Halldór Orri Björnsson, nýr formaður knattspyrnudeildar, situr hér í miðjunni og með honum eru Rúnar Páll þjálfari og Viktor Bjarki, yfirmaður knattspyrnumála.
Halldór Orri Björnsson, nýr formaður knattspyrnudeildar, situr hér í miðjunni og með honum eru Rúnar Páll þjálfari og Viktor Bjarki, yfirmaður knattspyrnumála. vísir/vpe

Rúnar Páll Sigmundsson var formlega tilkynntur sem nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta á blaðamannafundi í Garðabæ í dag. Viktor Bjarki Arnarsson er yfirmaður knattspyrnumála.

Stjarnan tilkynnti fyrir tveimur vikum að Rúnar Páll tæki við liðinu eftir skrautlegt tímabil liðsins. Jökull Elísabetarson hóf tímabilið sem þjálfari liðsins en Jón Þór Hauksson tók við starfinu af honum á miðju sumri.

Jón Þór entist aðeins í örfáar vikur og þriggja manna teymi stýrði liðinu til loka tímabilsins sem endaði með 6-0 sigri Stjörnunnar á Val um helgina, sem jafnframt tryggði Stjörnumönnum efsta sæti neðri hluta deildarinnar.

Rúnar Páll tekur nú við félaginu í annað sinn en hann var þjálfari þess frá 2016 til 2021. Undir hans stjórn vann Stjarnan eina Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins á hans fyrsta ári, 2016.

Viktor Bjarki Arnarsson verður nýr yfirmaður fótboltamála og Guðmundur Kristjánsson, sem hætti nýverið sem leikmaður liðsins, verður með Rúnari Páli í teyminu sem styrktarþjálfari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×