Innlent

Fjór­tán fá styrk frá Eyjólfi

Agnar Már Másson skrifar
Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra.
Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra. Vísir/anton brink

Innviðaráðuneytið greinir frá því að Eyjólfur Ármannsson ráðherra hafi samtals úthlutað rúmum 27 milljónum króna í styrki til fjórtán verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.

Í tilkynningu segir að styrkirnir séu veittir á grundvelli byggðaáætlunar, nánar tiltekið aðgerðar B.7 er varðar óstaðbundin störf.

Markmiðið er sagt vera að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni en þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni, að því er frá greinir í tilkynningunni.

Í mars 2026 var greint frá því þegar ráðherrann úthlutaði 50 milljónum til 26 vinnustaðaklasa, en vinnustaðaklasi er skilgreindur sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða.

Styrkhæfir voru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins en styrkir skiptast í ólíka flokka eftir svæðum, íbúafjölda og eftir því hversu rótgróin starfsemin er, segir í tilkynningunni.

Að sinni hafi minni staðir verið í forgangi þar sem atvinnulíf er einhæft, en einnig svæði sem hafa orðið fyrir verulegum áföllum í atvinnulífi eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum.

Eftirtalin verkefni hlutu, samkvæmt ráðuneytinu, styrk til að byggja upp vinnustaðaklasa og styðja við sjálfbærni þeirra.

  • Samvinnuhús á Stöðvarfirði. Umsækjandi: Sköpunarmiðstöðin. Styrkur: 2.462.313 kr.
  • Kaupvangur á Vopnafirði. Umsækjandi: Vopnafjarðarhreppur. Styrkur: 4.000.000 kr.
  • Golan í Grindavík. Umsækjandi: Grindavíkurbær. Styrkur: 4.000.000 kr.

Forgangsröðun b. Fjölgun plássa á forgangssvæði:

  • Kaupvangur á Vopnafirði. Umsækjandi: Vopnafjarðarhreppur. Styrkur: 624.000 kr.

Forgangsröðun c. Rekstrarstyrkur á forgangssvæði:

  • Þróunarsetrið á Hólmavík. Umsækjandi: Strandabyggð. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Samvinnurými á Stöðvarfirði. Umsækjandi: Sköpunarmiðstöðin. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Skuldarhalli á Vopnafirði. Umsækjandi: Skuldarhalli ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.

Forgangsröðun d. Ný uppbygging á miðlungssvæði:

  • Verbúðin í Bolungarvík. Umsækjandi: Rörás ehf. Styrkur: 4.000.000 kr.
  • Vinnustaðaklasinn í Hofsós frystihúsi. Umsækjandi: Hofsós frystihús ehf. Styrkur: 4.000.000 kr.

Forgangsröðun e. Framlag vegna nýrra plássa gegn langtímaskuldbindingu:

  • Engar umsóknir bárust vegna framlaga vegna nýrra plássa í þessari forgangsröðun.

Forgangsröðun f. Rekstrarstuðningur á miðlungssvæðum:

  • Gamli bankinn á Ísafirði. Umsækjandi: Fljót ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Samvinnurými Röst á Hellissandi. Umsækjandi: Snæfellsbær. Styrkur: 1.000.000 kr.

Forgangsröðun g. Einskiptisframlag vegna nýrrar starfsemi á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns:

  • Ein umsókn barst sem ekki var samþykkt.

Forgangsröðun g. Rekstrarstuðningur á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns:

  • Fjölheimar á Selfossi. Umsækjandi: Háskólafélag Suðurlands á Selfossi. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Konvin-setrið að Ásbrú í Reykjanesbæ. Umsækjandi: Konvin ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Rýmið á Akranesi. Umsækjandi: Muninn kvikmyndagerð ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.

Umsóknarfrestur var til 23. september og alls bárust 19 umsóknir um styrki að upphæð tæpum 69 milljónum, segir í tilkynningunni.  Þriggja manna valnefnd hafi verið falið að meta allar umsóknir og síðan gert tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×