Innlent

Mið­flokkurinn bætir við sig fylgi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð á landsþingi Miðflokksins.
Sigmundur Davíð á landsþingi Miðflokksins. Vísir/Lýður Valberg

Miðflokkurinn bætir mest við fylgi sitt samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Lítið breytist hjá öðrum flokkum.

Ríkisútvarpið greindi frá nýju könnuninni og mælist Samfylkingin áfram með mesta fylgið eða 29 prósent. Það er örlítið lægra heldur en í síðasta þjóðarpúlsi þar sem Samfylkingin mældist með 30,8 prósent.

Hástökkvarinn er Miðflokkurinn sem fór úr fimmtán prósentum í sautján prósent en ef þetta væru niðurstöður kosninga fengi flokkurinn tólf þingmenn en er með átta í dag. 

Í síðustu könnun lækkaði fylgi Sjálfstæðisflokksins hvað mest og var komið niður í 24, 7 prósent en halda þau 25 prósenta fylginu áfram í þessari könnun. Fylgið mælist þó hærra í þjóðarpúlsinum heldur en í skoðanakönnun Maskínu þar sem flokkurinn fær 21,9 prósent.

Viðreisn heldur sínu tíu prósenta fylgi og sömuleiðis heldur Framsóknarflokkurinn sínu sex prósenta fylgi. Áfram mælist Flokkur fólksins utan þings með fjögurra prósenta fylgi og reka Vinstri grænir lestina með þriggja prósenta fylgi. Þessar tölur breyttust lítið milli kannana.

Fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja, Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, mælist því 47 prósent. Könnun var framkvæmd dagana 29. september til 1. nóvember og tóku 12.906 þátt. Þátttökuhlutfallið var 38,5 prósent.


Tengdar fréttir

Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi

Formaður Miðflokksins segir umræðuna um regnbogafánana hafa komið sér á óvart. Allir eigi að fá að vera eins og þeir vilji vera en hópar telji fánann þvingandi og útilokandi og segir formaðurinn hættu á að hann ýti börnum út í „eitthvað trend“. Menntakerfið megi ekki beina þeim í „ákveðnar áttir“. Formaðurinn hefur ekki greitt atkvæði á þessu þingi en hyggst brátt tala manna mest og boðar nýjar tillögur í útlendingamálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×