Erlent

Draumurinn að rætast fyrir Demó­krata

Eiður Þór Árnason skrifar
Demókratinn James Talarico er sagður hafa sigrað Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993.
Demókratinn James Talarico er sagður hafa sigrað Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993. ap/Eric Gay

Allt útlit er fyrir að Demókrataflokkurinn nái meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. Dæmi eru um að fulltrúar Demókrata hafi náð markverðum árangri í helstu vígum Repúblikanaflokksins og fær flokkurinn sinn fyrsta öldungardeildarmann í Texas í yfir þrjá áratugi.

Repúblikanar eru með meirihluta í báðum þingdeildum í dag. Á meðan kannanir bentu sterklega til þess að Demókratar myndu ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni eftir kosningarnar í gær ríkti meiri spenna um niðurstöðurnar í öldungadeildinni. Langan tíma gæti tekið að staðfesta niðurstöður á sumum svæðum en helstu miðlar vestanhafs eru sammála um að óvissa fari þverrandi.

Mike Johnson, leiðtogi meirihlutans í fulltrúadeildinni og þingmaður Repúblikana, er sagður hafa viðurkennt ósigur flokksins í kosningapartýi sínu í Louisiana.

Demókratar náð yfirhöndinni í öldungadeildinni

Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa náð til sín sex sætum frá Repúblikönum í öldungadeild þingsins og tryggt sér það 51 sæti sem þarf til að ná þar meirihluta. 

Samkvæmt spámódeli The New York Times þurfti flokkurinn að sigra í þremur lykilríkjum til þess að ná meirihluta í deildinni en hafi nú gert gott betur og tryggt sér sigur í tveimur til viðbótar. Þá séu Demókratar mjög líklegir til að græða eitt sæti til viðbótar í Maine og styrkja meirihluta sinn.

Þannig eru Demókratar ýmist búnir að sigra eða taldir líklegir til að sigra í öllum mikilvægu sveifluríkjunum þegar kemur að öldungadeildinni.

Staðan einnig slæm fyrir Repúblikana í fulltrúadeildinni

Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa tryggt sér 158 sæti í fulltrúadeildinni en þeir þurfa alls 218 til að ná þar meirihluta. 

Samkvæmt spámódeli The New York Times þurfa Demókratar að vinna fjórtán lykilsæti í heildina til þess að ná yfirhöndinni og hafa þegar tryggt sér tólf þeirra. Flokkurinn er sagður frekar eða mjög líklegur til að vinna í 24 umdæmum til viðbótar og því talið nær öruggt að Demókrataflokkurinn geti fagnað sigri í báðum deildum þingsins.

Hægt er að fylgjast með nýjustu niðurstöðum talningar í útsendingunum hér fyrir neðan.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×