Erlent

Nauðlenti vegna sprengju­hótunar

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Farþegaflugvél Wizz Air tók af stað frá Luton-flugvelli í London klukkan átta í morgun og var stefnan sett á Sófíu í Búdapest. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. 
Farþegaflugvél Wizz Air tók af stað frá Luton-flugvelli í London klukkan átta í morgun og var stefnan sett á Sófíu í Búdapest. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.  Vísir/Getty

Farþegaflugvél flugfélagsins Wizz Air, sem var á leið sinni frá London til Sófíu í Búlgaríu, neyddist til að nauðlenda í Búdapest vegna sprengjuhótunar sem barst meðan vélin var á lofti. 

Romulusz Ruszin-Szendis, varnarmálaráðherra Ungverjalands, sagði að áhöfn flugvélarinnar hefði óskað eftir leyfi til þess að nauðlenda á flugvellinum í kjölfar hótunarinnar. Innan fárra mínútna hafði orrustuþota ungverska hersins farið á loft og fylgt vélinni á Liszt Ferenc-alþjóðaflugvöllinn í Búdapest.

Wizz Air staðfesti seinna að öryggiseftirlit hefði verið framkvæmt á flugvellinum, bæði á vélinni sjálfri og farþegum. Ekkert grunsamlegt hefði fundist við eftirlitið og hélt leið sinni áfram að því loknu. 

„Wizz Air er í fullu samstarfi við yfirvöld. Öryggi farþega og áhafnar er áfram okkar fremsta forgangsatriði,“ sagði í yfirlýsingu frá flugfélaginu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×