Ungverjaland

Ungverjaland

Höfuðborg: Búdapest. Mannfjöldi: 9,6 milljónir (2025). Flatarmál: 93.028 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Orbán hættir á þingi

Viktor Orbán ætlar að hætta á þingi eftir að hafa lotið í lægra haldi í kosningum fyrr í mánuðinum. Hann hafði verið forsætisráðherra í samfleytt sextán ár en galt afhroð í nýyfirstöðnum þingkosningum.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hákon Þór hvarf spor­laust í Búda­pest

Hákon Þór Elmers, 53 ára faðir frá Íslandi, hvarf sporlaust í Ungverjalandi laugardagskvöldið 11. apríl, eftir að hafa stungið af á flugvelli í höfuðborginni Búdapest. Síðustu þrjá til fjóra mánuði hefur Hákon dvalið á hóteli í borginni en hann er sagður hafa virst ringlaður þegar síðast sást til hans.

Innlent
Fréttamynd

Allra augu verða á Ung­verja­landi í kvöld

Heiftúðugri baráttu lýkur í dag þegar milljónir Ungverja kjósa til þings. Raðir eru víða á kjörstöðum sem verður lokað klukkan fimm síðdegis að íslensku tíma. Evrópa öll fylgist með öndina í hálsinum með þegar fyrstu tölur detta inn enda benda skoðanakannanir til þess að sextán ára valdatíð Viktors Orbán forsætisráðherra gæti lokið í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

Komið að ögur­stundu

Leið­togar stærstu stjórn­mála­flokka Ung­verja­lands héldu sína síðustu kosninga­fundi á laugar­dagskvöld á loka­metrum langrar baráttu sem endar með kosningum á sunnu­dag. Viktor Or­bán hefur setið á for­sætis­ráðherrastóli í sex­tán ár og stendur nú frammi fyrir sinni stærstu pólitísku próf­raun til þessa þegar mið-hægri­flokkurinn Tisza mælist með tveggja stafa for­skot í flestum óháðum skoðanakönnunum.

Erlent
Fréttamynd

Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt út­lit í könnunum

Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Gagn­rýna tví­skinnung Vance í Ung­verja­landi

Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar.

Erlent
Fréttamynd

Bauð Pútín að vera „músin“ hans

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín.

Erlent
Fréttamynd

JD Vance heim­sækir Orban fyrir kosningarnar um helgina

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, er væntanlegur í opinbera heimsókn til Ungverjalands í dag, til að sýna stuðning sinn við forsætisráðherrann Victor Orban fyrir kosningar í landinu á sunnudag. Flestar skoðanakannanir sýna Orban tapa kosningunum.

Erlent
Fréttamynd

Orbán sakaður um sprengju­til­ræði

Serbar segjast hafa fundið gríðarlega öflugar sprengjur við leiðslu sem flytur rússneskt jarðgas til Ungverjalands og víðar. Helsti andstæðingur Orbán Ungverjalandsforseta sakar hann um að hafa ætlað að sprengja leiðsluna í loft upp.

Erlent
Fréttamynd

Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu

Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir.

Erlent
Fréttamynd

Gengst nú við að gaspra í Rússa

Utanríkisráðherra Ungverjalands viðurkennir nú að hann ræði við rússnesk stjórnvöld í kringum leiðtogafundi á vegum Evrópusambandsins. Hann hélt því fyrst fram að fréttir um slíkt væru falskar.

Erlent
Fréttamynd

Sakar Orbán og fé­laga um land­ráð

Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Ung­verjar út í kuldann vegna leka til Rússa

Evrópusambandið takmarkar nú hvers konar trúnaðarupplýsingar Ungverjar fá aðgang að og leiðtogar velja að hittast í smærri hópum vegna gruns um að stjórn Viktors Orbán leki upplýsingum í Rússa.

Erlent
Fréttamynd

Orbán stendur í vegi fyrir lán­veitingunni til Úkraínu

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka.

Erlent
Fréttamynd

Leitar af­kom­enda Ungverjanna sem komu til Ís­lands fyrir sjö­tíu árum

Í ár verða liðin sjötíu ár síðan hópur ríflega fimmtíu flóttamanna kom frá Ungverjalandi til Íslands í framhaldi af byltingunni sem hófst í Búdapest haustið 1956. Í tilefni af þessum tímamótum hefur barnabarn eins flóttamannanna í hópnum ráðist í það verkefni að hafa uppi á afkomendum fólksins á Íslandi, en stór hluti hópsins settist hér að þótt aðrir hafi leitað áfram og aðeins staldrað stutt við á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Trump veitir Ung­verjum undan­þágu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gert Ungverja undanskilda refsiaðgerðum vegna kaupa á olíu frá Rússlandi, að sögn utanríkisráðherra Ungverjalands. Trump fundaði með Viktor Orbán forsætisráðherra í Hvíta húsinu í dag.

Erlent
Fréttamynd

Stutt stopp Orbans á Ís­landi

Forsætisráðherra Ungverjalands gerði stutt stopp á Keflavíkurflugvelli í morgun. Hann er á leið til Bandaríkjanna til að funda með Bandaríkjaforseta.

Innlent