Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Agnar Már Másson skrifar 12. apríl 2026 18:01 Peter Magyar, leiðtogi Tisza-flokksins á kosningafundi, segist gjalda varhug en kveðst samt bjatsýnn. ap/Darko Bandic Stjórnarandstöðuflokkur Péters Magyar vinnur þingkosningarnar í Ungverjalandi með 55,5 prósent atkvæða samkvæmt síðustu skoðanakönnunum sem gefnar hafa verið út eftir lokun kjörstaða. Forsætisráðherrann Viktor Orbán horfir þar upp á fylgistap þar sem Fidesz-flokknum er spáð 37,9 prósentum atkvæða.
Kjörstaðir lokuðu klukkan 17 að íslenskum tíma og í kjölfarið hefur mælingafyrirtækið Medián gefið út skoðanakönnun sem framkvæmd var síðustu þrjá daga í aðdraganda kosninganna. Kjörsókn er hið minnsta 77,8 prósent, sem er nýtt met. Alls eru 199 þingsæti í boði en Tisza, miðhægriflokkur Magyras, myndi samkvæmt þessum könnunum hljóta hreinan meirihluta með um 131–139 sæti. Fidesz, fjarhægri flokkur Orbáns, fengi um 59—67. Fjarhægriflokknum „Okkar heimalandi“ (ung. Mi Hazánk) er spáð tæplega 4 prósenta kosningu. Magyar sagðist í ræðu vera bjartsýnn en hann gyldi þó varhug við niðurstöðum könnunarinnar. Vert er að taka fram að hér er aðeins um skoðanakönnun að ræða en ekki útgönguspár, sem tíðkast í mörgum öðrum Evrópuríkjum. Rætist þessi spá er samt ljóst að 16 ára valdatíð Orbáns er að óbreyttu lokið en hann hefur stýrt landinu frá 2010 en hann hefur á þessum tíma grafið verulega undan lýðræðisstofnunum, fjölmiðlafrelsi og kosningakerfum landsins. Orbán hefur til að mynda samið nýja stjórnarskrá og náð þvílíkri stjórn á fjölmiðlum landsins að honum hefur tekist að koma algjörlega í veg fyrir það að Péter Magyar, helsta andstæðingi hans, sé boðið að tala í ríkissjónvarpi Ungverjalands. Orbán er dyggur stuðningsmaður Donalds Trump og hefur sterk tengsl við stjórnvöld í Rússlandi. Á vettvangi Evrópusambandsins hefur Orbán oft reynt að hindra samþykktir um aukinn fjárstuðning við Úkraínumenn vegna innrásarstríðs Rússa og það er opinbert leyndarmál að fjöldi Evrópuleiðtoga vonist eftir því að honum verði steypt af stóli.
Ungverjaland Evrópusambandið Kosningar í Ungverjalandi Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira