Erlent

„Niður­staðan er sú að hann setti þetta aftur á“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Trump og Musk fyrir utan Hvíta húsið á dögunum.
Trump og Musk fyrir utan Hvíta húsið á dögunum. Vísir/Getty

Elon Musk hefur opnað aftur fyrir aðgang Úkraínu að Starlink að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta í kjölfar þess að Selenskí forseti Úkraínu sagði að tengingin við Starshield, hernaðarútgáfu kerfisins, væri ekki komin í lag. Trump neitar að hafa haft samband við Musk vegna málsins.

Takmarkanir á þjónustunni höfðu komið niður á getu úkraínska hersins sem hefur lengi reitt sig á notkun Starlink-gervihnatta SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, til samskipta á víglínunni og til að stýra drónum sínum. Að undanförnu hefur Starlink reynst sérstaklega mikilvægt þegar kemur að því að stýra sérstökum varnardrónum sem eru hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum.

Trump vildi ekki tjá sig um fréttir af því að hann hafi hringt í Musk og beðið hann um að aflétta takmörkunum á Úkraínu.

„Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á,“ sagði Trump.

Óljóst hver tók ákvörðunina

Mjög hefur verið á reiki hver ber ábyrgð á hægagangi Starshield-kerfisins. Reuters greindi frá því á dögunum að skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu og Musk hafði gefið í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn.

Sjálfur neitaði Musk að hann bæri ábyrgð á hægaganginum. Hann sagði að Starshield-kerfin væru í eigu og undir stjórn bandarískra stjórnvalda en kerfið er knúið af gervihnattakerfi Musks.

Bandarísk stjórnvöld neituðu hins vegar að hafa gefið Musk nokkurs konar fyrirmæli um að skerða aðganginn að kerfinu en þær komu á sama tíma og Trump þrýsti á Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta að hætta árásum á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi. Spenna á milli forsetanna tveggja hefur aukist síðustu daga og hefur Trump meðal annars sagt að kominn sé tími á nýjan forseta í Úkraínu.

Sjálfur hefur Trump aflétt hluta refsiaðgerða gegn Rússlandi og samþykkt innflutning á rússneskri olíu til Bandaríkjanna en sú ákvörðun var gagnrýnd af Úkraínumönnum og evrópskum bandamönnum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×