Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Samúel Karl Ólason skrifar 19. október 2026 14:45 Paul Mackenzie í dósmal fyrr á árinu. Hann og 29 fylgjendur hans eru sakaðir um að hafa svelt 190 börn til bana. Getty/Lucas Mukasa, Anadolu Kenískur prestur verður í dag dæmdur í umfangsmiklu fjöldamorðsmáli. Paul Mackenzie stýrði sértrúarsöfnuði en hann og fylgjendur hans eru sakaðir um að hafa myrt 190 börn og einn fullorðinn mann. Mackenzie sannfærði foreldra barnanna um að svelta þau til dauða svo þau gætu hitt Jesú.
Börnin voru sum bundin á meðan þau sveltu. Yfirvöld fundu rúmlega fjögur hundruð lík í grunnum gröfum í Shakahola-skógi. Þar leiddi Mackenzie fylgjendur sína sem sagðir eru hafa komið víðs vegar að frá Kenía. Meðal þess sem hann sagði fylgjendum sínum var að menntun væri af hinu illa og að nútímalyf sömuleiðis. Konum var gert að raka af sér hárið eða eiga ekkert við það. Dómsuppkvaðning hófst í morgun en hún tók langan tíma þar sem lesa þurfti rúmlega þúsund blaðsíðna úrskurðinn gegn Mackenzie, samkvæmt frétt The Star í Kenía. Áhugasamir geta fylgst með lestrinum, sem hefur staðið yfir í nokkrar klukkustundir þegar þetta er skrifað, í spilaranum hér að neðan. Mackenzie og 29 fylgjendur hans voru ákærðir fyrir morð og hafa allir lýst yfir sakleysi sínu. Þeir segja engan hafa verið neyddan til að deyja. Samkvæmt frétt BBC var fyrrverandi yfirmaður öryggismála hjá sértrúarsöfnuðinum einnig ákærður en hann gekk við sök og bar vitni gegn prestinum og hinum. Leiðtogar sértrúarsafnaðarins standa einnig frammi fyrir fjölmörgum öðrum ákærum. Þar á meðal eru ákærur um hryðjuverk, öfgastarfsemi og brot á börnum. Eftir að áðurnefndar grafir fundust voru sjö menn ráðnir til að grafa líkin upp. Í samtali við blaðamann sagði einn þeirra að í hverri gröf hefðu þeir fundið að minnsta kosti þrjú lík. Þar á meðal hafi verið kornabörn. Í einni gröfinni fundu þeir lík tólf barna sem maðurinn sagði að hefði verið raðað í röð. Sum barnanna voru með bundnar hendur. Einnig var rætt við Stephen Mwiti sem segist hafa tapað öllum sex börnum sínum til sértrúarsafnaðarins. Eiginkona hans er ein af hinum ákærðu í málinu og tók börnin með sér þegar hún gekk til liðs við Mackenzie. Öll börnin dóu en Mwiti segist bara vera búinn að finna lík eins þeirra. Búið er að bera kennsl á lítinn hluta líkanna. Mwiti segir að ef hann myndi sjá Mackenzie í dag, myndi annar þeirra deyja. Police exhume remains of suspected Christian cult members in Kilifi epa10588062 Kenyan homicide detectives and forensic experts from the Directorate of Criminal Investigations (DCI), examine exhumed bodies from several shallow mass graves of suspected members of a Christian cult after starving themselves to death, after allegedly being told by their controversial preacher Paul Mackenzie that they would go to heaven if they starved themselves to death, in the coastal Shakahola forest, in Kilifi, Kenya, 23 April 2023. According to the Police, 18 more bodies were exhumed on 23 April bringing the tally of bodies recovered to at 39. EPA/STR Lokaði kirkjunni og fluttu út í skóg Mackenzie stofnaði söfnuðinn Good News International Ministries árið 2003. Á næstu sextán árum stækkaði söfnuðurinn hratt, þar sem Mackensie var með útibú víða um landið og birti auglýsingar í sjónvarpi. Árið 2019 var kirkjunni lokað og Mackenzie flutti í Shakahola-skóg. Hann hvatti fylgjendur sína til að koma með sér og varaði við því að dómsdagur væri í nánd. Þar er fólkið sagt hafa búið í leirhúsum á víð og dreif um skóginn. BBC hefur eftir einum manni sem fylgdi móður sinni í söfnuðinn að eftir komuna í skóginn hafi hann veikst. Móðir hans henti þó öllum lyfjum sem hann átti að nota, af því að guð væri sá eini sem gæti læknað hann. Hann segir að þau hafi lítið borðað í skóginum. Þegar fyrstu grafirnar fundust í mars 2023 höfðu hundruð af fylgjendum Mackenzie dáið og verið grafnir í skóginum. Einhverjum var bjargað úr skóginum og þar á meðal unga manninum. Hann segist sannfærður um að hann hefði dáið ef hann hefði ekki verið fluttur úr skóginum. Þrátt fyrir það segist hann ekki vilja segja eitt illt orð um Mackenzie. Maðurinn ungi segir að presturinn hafi ekki þvingað neinn til að svelta. Fólk hafi tekið þá ákvörðun sjálft. „Ég elska hann enn og hann er enn presturinn minn.“
Kenía Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira