Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Lovísa Arnardóttir skrifar 17. október 2026 08:17 Tilkynnt var um ákvörðun Trump seint í gær. Vísir/EPA Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Hann tilkynnti á þinginu í gær að hann væri að fresta gildistökunni í þágu þjóðarhagsmuna en útskýrði það ekki nánar.
Trump undirritaði sjálfur lögin í síðasta mánuði en ákvörðun hans nú kom aðeins tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út samkvæmt lögunum sjálfum. Löggjöfin var kennd við Lindsey Graham, öldungadeildarþingmann frá Suður-Karólínu sem lést í sumar, og átti að herða aðgerðir gegn fjármagnsflæði sem stendur undir stríðsrekstri Rússa gegn Úkraínu. Skipti um skoðun Í frétt AP segir jafnframt að Graham, sem var náinn bandamaður og vinur forsetans, hafi nýlega snúið aftur frá Úkraínu þegar hann lést óvænt í júlí. Hann hafði talað fyrir hertum refsiaðgerðum Bandaríkjanna gegn Rússlandi til að þrýsta á stjórnvöld þar í landi að binda enda á stríðið í Úkraínu. Eftir andlát hans sameinuðust þingmenn úr báðum flokkum um að styðja löggjöfina. Trump undirritaði hana en hefur nú skipt um skoðun. Markmiðið með aðgerðunum var að svipta Vladimír Pútín forseta Rússlands þeim fjármunum sem Moskva þarf til að halda áfram stríðinu í Úkraínu. Frumvarpið, sem Richard Blumenthal, öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins frá Connecticut, samdi einnig, fól í sér refsiaðgerðir gegn rússneskum embættismönnum og bönkum, auk refsiaðgerða gegn svokölluðum skuggaflota olíuskipa sem heldur uppi flutningum á rússneskum orkugjöfum. Þá var Trump gert að leggja allt að 100 prósenta tolla á fimm stærstu innflytjendur rússneskrar olíu eða jarðgass. Undanþága átti að gilda fyrir ríki sem flytja inn minna en 15 prósent af rússnesku jarðgasi og hafa gripið til verulegra aðgerða til að draga úr þeim innflutningi. Hafi ekkert með þjóðaröryggi að gera Blumenthal sagði í yfirlýsingu að Trump væri að snúa baki við „meirihluta Bandaríkjamanna, fulltrúum þeirra í báðum deildum Bandaríkjaþings og evrópskum bandamönnum okkar“. „Þessar undanþágur hafa ekkert með þjóðaröryggi okkar að gera, heldur snúast þær alfarið um að geðjast Vladimír Pútín,“ sagði Blumenthal. Í frétt AP segir að ekki hafi komið skýring á því frá Hvíta húsinu hvernig það að fresta gildistökunni þjónaði þjóðarhagsmunum. Ákvörðunin var birt á vef Hvíta hússins seint í gærkvöldi og þar kom fram að skýrsla með rökstuðningi hefði verið send þinginu. Ákvörðunin kemur engu að síður á sama tíma og Trump hefur í auknum mæli gagnrýnt Volodimír Selenskíj Úkraínuforseta opinberlega og kennt honum um að hafa ekki náð samkomulagi við Pútín um að binda enda á átökin. „Það er því hans að ákveða hvort hann vilji nota þau eða eitthvað annað. En ég tel að markmiðið sé að lækka bensínverð og að lokum binda enda á stríðið. Þegar stríðinu lýkur mun bensínverðið lækka.“ Kaup á dísilolíu Ákvörðun Trumps kemur viku eftir að hann vakti athygli með því að segja að Bandaríkin hefðu samið um kaup á dísilolíu frá Rússlandi í því skyni að lækka orkuverð á heimsvísu. Með því var horfið frá margra ára þrýstingi Bandaríkjanna og vestrænna ríkja. Trump sagði í síðustu viku að Rússland myndi þegar í stað afhenda meira en 300.000 tonn af dísilolíu. Því myndu fylgja 500.000 tonn til viðbótar í nóvember og ein milljón tonna „skömmu síðar“. Rússland myndi síðan afhenda þrjár milljónir tonna til viðbótar „innan skamms tíma“. Nánar á vef Guardian. Forsetinn hefur sætt víðtækri gagnrýni vegna tilkynningarinnar. Tólf öldungadeildarþingmenn Bandaríkjanna, þar á meðal sex repúblikanar, skoruðu á Trump að rifta samkomulaginu um dísilolíukaupin. Selenskíj sagði á föstudag, þegar hann hitti leiðtoga Evrópuríkja í Brussel, að dísilolíusamningurinn myndi leiða til þess að „peningar færu aftur að streyma til Rússlands“. Missir fylgi í aðdraganda kosninga Í frétt AP um málið segir að ný könnun frá byrjun október þar sem almenningur var spurður um álit sitt á forsetanum hafi sýnt að margir kenna honum um hærra verðlag og rekja það til stríðsreksturs hans í Íran. Trump hefur síðustu vikur kennt árásum Úkraínumanna á rússneskar olíuhreinsistöðvar um hækkandi orkuverð. Fylgi hans hefur samkvæmt könnuninni lækkað niður í nær sögulegt lágmark og nú þegar styttist í þingkosningar í nóvember eykst þrýstingur á hann því Repúblikanaflokkurinn á mikið undir við að halda þingmeirihluta sínum í báðum deildum Bandaríkjaþings.
Bandaríkin Rússland Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Orkumál Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Sjá meira