Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. október 2026 17:32 Frá mótmælunum í París á laugardag. Remon Haazen/Getty Images Forsætisráðherra Frakklands segist hafa farið fram á það við sveitarstjórnir í Frakklandi að sett verði á takmarkað útgöngubann í nokkrum borgum landsins eftir óeirðir og mótmæli víða um land um helgina. Innanríkisráðherra Frakklands hefur viðurkennt að stjórnvöld hafi misst stjórn á ástandinu í borgum líkt og Paris og Lyon.
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar upp í kjölfar mótmæla stúdenta sem kalla eftir fjármagni og betri kennsluaðstöðu. Fljótlega fóru mótmælin að vinda upp á sig og hafa hundruð þúsund manna tekið þátt. Tvö þúsund manns hafa verið handteknir í mótmælunum og 150 lögreglumenn slasast. Guardian hefur eftir Sébastian Lecornu forsætisráðherra landsins að stjórnvöld séu staðráðin í því að koma á lögum og og reglu á ný í landinu. Ekki komi til greina að setja á allsherjarútgöngubann en takmarkað útgöngubann verður sett á í fjórum borgum í norðurhluta Frakklands frá klukkan 20:00 til 06:00 að morgni í nótt og næstu nótt, meðal annars í borginni Lille. Þá hafa borgaryfirvöld í Marseille, sem er næststærsta borg Frakklands, tilkynnt að allar samkomur séu bannaðar í borginni í dag. Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands sagði í dag að skortur á fyrirhyggju hefði orðið til þess að lögregla hafi ekki ráðið við mótmælin. Upplýsingar yfirvalda hefðu bent til þess að um tvöhundruð þúsund manns myndu taka þátt í mótmælunum á landsvísu. Þeir hefðu hinsvegar reynst vera fimm hundruð þúsund.
Frakkland Tengdar fréttir Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt. 19. október 2026 06:39 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira
Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt. 19. október 2026 06:39