Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 12. apríl 2026 13:23 Kjörstaðir eru fullir út úr dyrum um landið allt. AP Heiftúðugri baráttu lýkur í dag þegar milljónir Ungverja kjósa til þings. Raðir eru víða á kjörstöðum sem verður lokað klukkan fimm síðdegis að íslensku tíma. Evrópa öll fylgist með öndina í hálsinum með þegar fyrstu tölur detta inn enda benda skoðanakannanir til þess að sextán ára valdatíð Viktors Orbán forsætisráðherra gæti lokið í kvöld.
Orbán stendur frammi fyrir nokkuð brattri brekku í kvöld þrátt fyrir að hann hafi nýtt valdatíma sinn vel til að grafa undan lýðræðisstofnunum, fjölmiðlafrelsi og kosningakerfum landsins. Hann hefur til að mynda samið nýja stjórnarskrá og náð þvílíkri stjórn á fjölmiðlum landsins að honum hefur tekist að koma algjörlega í veg fyrir það að Péter Magyar, helsti andstæðingur hans, sé boðið að tala í ríkissjónvarpi Ungverjalands. Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld.AP Samkvæmt umfjöllun Politico hefur kjörsókn verið með eindæmum góð það sem af er degi. Skoðanakannanir benda sömuleiðis til þess að Tisza-flokkur Magyar fari með sigur af hólmi. Ungverska stjórnarandstaðan er þó brennd af fyrri falsvonum. Hún virtist eygja möguleika á sigri fyrir síðustu kosningar árið 2022 þegar kannanir bentu til þess að mjótt yrði á munum. Niðurstaðan var hins vegar aukinn meirihluti Fidesz á þingi. Á lokasprettinum færðist enn meiri harka í málflutning Orbán og Magyar. Sá fyrrnefndi sagði stríð og efnahagshrun blasa við Ungverjum færi Magyar með sigur af hólmi og sá síðarnefndi sakaði Orbán um landráð og að hafa sviðsett sprengjutilræði í Serbíu til að skjóta Ungverjum skelk í bringu. Í umfjöllun Politico kemur fram að 54 prósent skráðra kjósenda hefðu þegar greitt atkvæði klukkan eitt í dag sem er besta kjörsókn frá árinu 2010, þegar Viktor Orbán náði völdum. Fyrstu tölur berast um sexleytið að íslenskum tíma og Vísir fylgist að sjálfsögðu náið með.
Ungverjaland Kosningar í Ungverjalandi Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira