Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Kjartan Kjartansson skrifar 8. apríl 2026 15:37 J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, (t.h.) með Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, í Búdapest í gær. Orbán er helsti hugmyndafræðilegi bandamaður Trump-stjórnarinnar í Evrópu en margir repúblikanar dáast að ófrjálslyndri valdboðshyggju ungverska forsætisráðherrans. Vísir/EPA Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar.
J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, fullyrti að „skriffinnar“ í Brussel hefðu gert allt sem í þeirra valdi stæði til þess að halda ungversku þjóðinni niðri vegna óbeitar þeirra á Orbán. Þetta væri eitt versta dæmi um erlend afskipti af kosningum sem honum væri kunnugt um. Þetta sagði bandaríski varaforsetinn við hlið Orbán í Búdapest í gær, innan við viku áður en Ungverjar kjósa sér nýtt þing í kosningum þar sem tvísýnt er að Orbán haldi velli. Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar gagnrýndi tvískinnung Vance í dag um leið og hann hafnaði ásökunum hans um meint afskipti evrópskra leiðtoga af ungversku kosningunum. „Mig langar til þess að benda á, fyrst að Vance kvartar undan meintum afskiptum ESB af kosningum, að bandaríski varaforsetinn var í Ungverjalandi aðeins örfáum dögum fyrir kosningar. Sú staðreynd talar fyrir sig um það hver er að reyna að hafa áhrif,“ sagði Sebastian Hille við fréttamenn í dag, að því er kemur fram í evrópska blaðinu Politico. Ungverska stjórnarandstaðan, sem eygir möguleikann á að velta Orbán úr sessi, var heldur ekki ánægð með íthlutun Bandaríkjastjórnar í kosningabaráttuna. „Ekkert erlent ríki má hafa áhrif á ungversku kosningarnar. Þetta er okkar land. Saga Ungverjalands er ekki skrifuð í Washington, Moskvu eða Brussel, hún er skrifuð á strætum og torgum Ungverjalands,“ skrifaði Peter Magyar, leiðtogi stjórnarandstöðunnar á samfélagsmiðla.
Þýskaland Bandaríkin Donald Trump Ungverjaland Evrópusambandið Kosningar í Ungverjalandi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira