Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júlí 2026 00:07 Péter Magyar, núverandi forsætisráðherra Ungverjalands, lofaði því í kosningabaráttu sinni að gera umbætur á fjölmiðlaumhverfi landsins. Getty Ríkisfjölmiðill í Ungverjalandi hætti fréttaútsendingu tímabundið og ríkisrekinni útvarpsstöð var lokað í þeim tilgangi að gera fjölmiðla þar í landi „óháða og traustvekjandi.“
BBC greinir frá og segir Viktor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, hafa haft strangt eftirlit með ríkisfjölmiðlum þar í landi. Péter Magyar, núverandi forsætisráðherra, hafi lofað því í kosningabaráttu sinni að gera umbætur á fjölmiðlaumhverfi landsins. Sjónvarpsstöðin M1 og útvarpsstöðin Kossuth hafi hætt útsendingum tímabundið í dag en Magyar hafi lýst því sem „endalokum áróðursútsendinga.“ Í útsendingu stöðvarinnar M1 hafi birst svartur skjár er á stóð: „Ríkisfjölmiðlar eiga ekki að ljúga. Við biðjumst afsökunar á að hafa gert það svo lengi. Ríkisfjölmiðlar verða nú endurbættir svo þeir verði óháðir og traustverðugir. Fréttaþátturinn er í hléi í bili. Fylgist með!“ Einnig hafi vefmiðlar M1 og Kossuth legið niðri í dag. Samtök ungverskra ríkisfjölmiðla, MTVA, hafi sagt að útsendingar hefjist aftur í kvöld en með breyttu sniði. Tisza-flokkur Péters Magyar vann stórsigur í þingkosningum í apríl síðastliðinum á Fidesz-flokki Viktors Orbán. Þá hafði Orbán verið við völd í Ungverjalandi í sextán ár og haft tögl og hagldir á ungversku samfélagi.
Fjölmiðlar Ungverjaland Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira