Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Lovísa Arnardóttir skrifar 28. október 2026 07:09 Melissa Ann Smith var myrt árið 1974 og var aðeins sautján ára gömul. Utah Department of Public Safety Yfirvöld í Utah í Bandaríkjunum hafa komist að því, með því að nota háþróaða erfðatækni, að hinn alræmdi raðmorðingi Ted Bundy var sá sem myrti hina sautján ára Melissa Ann Smith, dóttur lögreglustjóra. Smith fannst látin 27. október 1974 og bar merki um nauðgun og pyntingar. 52 ár eru síðan lík hennar fannst af veiðimönnum.
Í frétt BBC segir að í apríl hafi yfirvöld í Utah staðfest að önnur unglingsstúlka, Laura Ann Aime, hefði einnig verið fórnarlamb Bundys. Sönnunargögn úr því máli voru síðan notuð til að upplýsa mál Smith. Þar kemur einnig fram að áður en Bundy var tekinn af lífi árið 1989 hafði hann játað að hafa myrt tvær aðrar unglingsstúlkur í Utah. Hann hefur verið tengdur við að minnsta kosti 30 morð víðs vegar um Bandaríkin. Á blaðamannafundi í gær sagði Mike Reynolds, varðstjóri hjá lögreglunni í Utah-sýslu, að enn væri verið að rannsaka fleiri mál tengd Bundy í ríkinu. „Megum við með hverju upplýstu máli þurrka út minninguna um Ted Bundy,“ sagði hann. Ted Bundy brosir á öðrum degi réttarhalda í Dade sýslu árið 1979. Vísir/AP Mikilvægt að geyma erfðaefnin Í frétt AP um málið kemur fram að rannsakendur telji fullvíst að Bundy hafi borið ábyrgð á morðinu á hinni 17 ára gömlu Melissu Ann Smith árið 1974, en málið hafði lengi verið skráð sem óupplýst, sagði Margaret Olson, saksóknari Summit-sýslu, á blaðamannafundi. Þeim tókst að loka málinu með því að finna mikilvæg tengsl á milli erfðaefnis sem fannst á Smith og á Lauru Aime. Erfðaefni Bundys var skráð í Flórída, þar sem hann var sakfelldur og að lokum tekinn af lífi. Auk þeirra sönnunargagna bar dauði Smith einkenni „mynsturs, ástæðu, aðferða og tækifæris“ Bundys, sagði Olson. Bundy hefur verið látinn frá árinu 1989 en staðfestum fórnarlömbum hans heldur áfram að fjölga vegna framfara í erfðaefnisrannsóknum. Hann myrti að minnsta kosti 30 konur og stúlkur í mörgum ríkjum á áttunda áratugnum og mun fleiri sluppu eða lifðu af með áverka. Haft er eftir Rosie Rivera, lögreglustjóra Salt Lake-sýslu, í frétt BBC að málið ætti að vera merki til annarra fórnarlamba óupplýstra mála „um að það sé von“. „Réttarvísindin breytast dag frá degi og við höfum getu til að skoða þessi mál aftur og aftur.“ Hún hrósaði einnig rannsóknarlögreglumönnum fyrir að hafa varðveitt sönnunargögn í málinu svo lengi og sagði það sýna nauðsyn þess að varðveita sönnunargögn. Slapp tvisvar úr fangelsi Bundy er einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna. Hann var þekktur fyrir að nálgast konur á almannafæri, ávinna sér traust þeirra með sjarma sínum eða með því að ljúga að þeim um að hann væri meiddur, lokka þær síðan á afskekkta staði og myrða þær. Hann var fyrst handtekinn árið 1975 fyrir að ræna konu og dæmdur í 15 ára fangelsi en árið 1977 slapp hann með því að stökkva út um glugga á bókasafni fangelsisins. Hann náðist aftur eftir átta daga en slapp síðan á ný og hélt áfram að myrða þar til hann var loks handsamaður árið 1978. Gerðar hafa verið fjöldi kvikmynda og sjónvarpsþátta um Ted Bundy. Tvær myndir komu út árið 2021. Önnur var American Boogeyman með Chad Michael Murray í aðalhlutverki sem Bundy og svo No Man of God árið 2012 þar sem Luke Kirby lék Ted Bundy. Árið 2019 lék Zac Efron morðingjann alræmda. Myndin heitir Extremely Wicked, Shockingly Evil and Vile. Þá kom einnig út myndin Ted Bundy árið 2002 þar sem Micheal Reilly Burke lék Bundy og sjónvarpsþættir árið 1986 þar sem Mark Harmon lék Bundy. Auk þess hafa verið gerðir fjöldi heimildarþátta og -kvikmynda.
Erlend sakamál Bandaríkin Tengdar fréttir Zac Efron ýmist hrósað eða sagður of „heitur“ í hlutverki hins sjúka Ted Bundy Gagnrýnendur segja sumir að hann beri myndina uppi en aðrir gagnrýna myndina fyrir að sveipa þennan sjúka raðmorðingja töfraljóma. 28. janúar 2019 11:09 Raðmorðingjarnir sem voru innblásturinn að Mindhunter Þáttaröðin er byggð á sannri sögu fulltrúa alríkislögreglunnar, FBI, sem bar brautryðjandi á sviði sálfræðinnar að baki þess að koma upp um glæpamenn. 20. október 2017 16:39 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira
Zac Efron ýmist hrósað eða sagður of „heitur“ í hlutverki hins sjúka Ted Bundy Gagnrýnendur segja sumir að hann beri myndina uppi en aðrir gagnrýna myndina fyrir að sveipa þennan sjúka raðmorðingja töfraljóma. 28. janúar 2019 11:09
Raðmorðingjarnir sem voru innblásturinn að Mindhunter Þáttaröðin er byggð á sannri sögu fulltrúa alríkislögreglunnar, FBI, sem bar brautryðjandi á sviði sálfræðinnar að baki þess að koma upp um glæpamenn. 20. október 2017 16:39