Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Lovísa Arnardóttir skrifar 28. október 2026 06:30 Gadi Eisenkot fagnar fyrstu tölum í nótt. Vísir/EPA Búið er að telja um helming atkvæða í þingkosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Á vef ísraelska miðilsins Haaretz kemur fram að Netanahjú og hans fylking séu með um 55 sæti af 120 og stjórnarandstaðan með 64 samanlagt. Fylking Eisenkot er samkvæmt Haaretz með 49 sæti og Arabaflokkar með 16.
Helsti áskorandi og andstæðingur Netanjahú er Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins. Útgönguspár bentu til þess í gær að flokkur hans, Yashar, myndi hafa naumlega betur en Likud-flokkur Netanjahú. Vefur Haaretz. Netanahjú er þannig með flest sæti en ekki nóg fyrir þingmeirihluta. 120 sæti eru á Knesset, ísraelska þinginu, og því enginn með meirihluta eins og er. Haft er eftir Netanahjú á vef Times of Israel í nótt að hægri fylkingin hafi unnið skýran sigur og að hann ætli sér að mynda hægri stjórn. Í ræðu sinni sagði hann Íran aldrei hafa verið veikara og Ísrael aldrei sterkara. Benjamín Netanahjú, forsætisráðherra Ísrael, á kosningakvöldi í gær. Vísir/EPA „Hægriblokkin hefur skýran og afgerandi meirihluta meðal síonísks almennings,“ sagði hann, „meðal gyðinga og allra þeirra sem styðja ríkið.“ Af þessum sökum þurfi Ísrael hægrisinnaða, þjóðlega og sterka ríkisstjórn. „Það er það sem þarf að gera.“ Hann sagði óhugsandi að „að stofna Ísrael í hættu og mynda ríkisstjórn sem reiðir sig á andsíoníska flokka Araba,“ segir hann, „flokka sem eru andvígir sjálfri tilvist okkar, sem líta á Hamas sem góðgerðasamtök og kalla hermenn okkar stríðsglæpamenn.“ Fyrstu útgönguspár bentu til þess í gær að hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan myndi ná þeim 61 þingsæti sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti. Það virðist vera að raungerast. Kjörsókn var nokkuð góð, eða um 77,7 prósent samkvæmt vef BBC en kjörstaðir lokuðu klukkan 22 í gær og samkvæmt BBC hefur kjörsókn ekki verið meiri síðan 1999. Talið er að um 70 þúsund Ísraelar, búsettir erlendis, hafi komið heim til að kjósa.
Kosningar í Ísrael Ísrael Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Kjörstaðir voru opnaðir í Ísrael í morgun í fyrstu þingkosningum frá árás Hamas-liða 7. október 2023, sem leiddi til blóðugra átaka á Gaza. Flestar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarbandalag Benjamins Netanyahu forsætisráðherra muni missa meirihluta sinn á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti. 27. október 2026 06:59 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira
Kjörstaðir opnir í Ísrael Kjörstaðir voru opnaðir í Ísrael í morgun í fyrstu þingkosningum frá árás Hamas-liða 7. október 2023, sem leiddi til blóðugra átaka á Gaza. Flestar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarbandalag Benjamins Netanyahu forsætisráðherra muni missa meirihluta sinn á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti. 27. október 2026 06:59