Byggðamál

Fréttamynd

Baldur til Eyja

Ferjan Baldur mun sigla til og frá Vestmannaeyjum tímabundið vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður. Gert er ráð fyrir fyrstu siglingunni til Eyja á föstudag en ferðaáætlun hefur ekki verið birt.

Innlent
Fréttamynd

„Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“

Innviðaráðherra segir að reynt hafi verið að fá belgískt fyrirtæki, sem tekur við dýpkun Landeyjahafnar frá og með haustinu, fyrr að verkinu. Hann segist þokkalega ánægður með þær aðgerðir sem ráðuneytið kynnti í gær til að bæta samgöngur til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

„Ég veit ekkert hve­nær þeir komast aftur heim“

Íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega sautján daga í röð til að mótmæla ófremdarástandi í samgöngum við Eyjar segir Vegagerðina bregðast Eyjamönnum. Skipuleggjandi Puffin stingur upp á sjö tíma siglingu með Herjólfi fyrir ráðamenn til að þeir átti sig á stöðunni.

Innlent
Fréttamynd

Heil­brigðis­þjónusta eftir póstnúmeri

Ég valdi að búa á landsbyggðinni en ég valdi ekki að þurfa að borga meira fyrir heilbrigðisþjónustu. Samt er það raunin fyrir marga sem þurfa að sækja sérfræðilækna utan heimabyggðar.

Skoðun
Fréttamynd

Samningur um Ísa­fjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair

Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða.

Innlent
Fréttamynd

Varnarsigur segir for­maður bæjar­ráðs Ísa­fjarðar

Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.

Innlent
Fréttamynd

Vinna á­fram að alþjóðahöfn og iðnaðar­svæði í Finnafirði

Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis.

Innlent
Fréttamynd

Hólar í Hjalta­dal: Við getum gert betur

Í febrúar 2017 fluttum við hjónin í Skagafjörð, nánar tiltekið heim að Hólum í Hjaltadal. Í kjölfarið fór ég að kynna mér staðinn betur og varð hissa á því hversu fáir þekkja til hans og vita af þessum sögufræga stað, þar á meðal ég sjálf.

Skoðun
Fréttamynd

Gamblað með göng og líf lögð undir

Þessi vetur hefur verið þungur fyrir Austfirðinga. Óvenju þungur. Ekki bara hefur óveður ítrekað lokað vegum, heldur hefur Innviðaráðherra þyngt róðurinn enn frekar.

Skoðun
Fréttamynd

Gagnheiðargöng verði sátta­leið Aust­firðinga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Sam­tal hafið um Ísafjarðarflug

Viðræður eru hafnar milli Icelandair og Vegagerðarinnar um framhald áætlunarflugs til Ísafjarðar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir of snemmt að segja til um hvernig þeim vindur fram.

Innlent
Fréttamynd

Sjaldan launar kálfurinn ofeldið

Í hugum flestra felur hugtakið byggðaverkefni í sér sértækar aðgerðir og samstarf sem ætlað er að styrkja innviði, fjölga atvinnutækifærum og auka lífsgæði í tilteknum byggðarlögum eða landshlutum.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég er ekki að úti­loka neitt, það er allt uppi á borðinu“

Innviðaráðherra útilokar ekki að tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur verði samþykkt þrátt fyrir að vera langt yfir áætlun. Tilboðið er það eina sem barst og hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna, það er ríflega tveimur milljörðum yfir áætlun Vegagerðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Að­för að verðmæta­sköpun

Ég var ánægð að heyra í upphafi kjörtímabilsins að sitjandi ríkisstjórn ætlaði að kenna sig við verðmætasköpun. Verðmætasköpun sem myndi felast í því að efla byggðir landsins, styðja við vöxt fyrirtækja, auka gjaldeyristekjur, efla innviði, skapa störf og auka hagsæld.

Skoðun
Fréttamynd

Er Reykja­vík virki­lega dreifð? Gögn segja annað

Í umræðunni um skipulag og þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu hefur lengi verið haldið fram að Reykjavík sé miklu dreifðari en sambærilegar borgir í nágrannalöndum. Þessi fullyrðing hefur jafnvel verið notuð sem rök fyrir stórum breytingum á skipulagi og samgöngum. En þegar rýnt er í alþjóðleg gögn kemur í ljós að þessi forsenda stenst ekki.

Skoðun
Fréttamynd

„Það er verið að setja Austur­land í frost“

Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir ríkisstjórnina þyrla upp ryki með nýrri samgönguáætlun og færa fjármuni, sem Austfirðingum höfðu verið lofaðir, á önnur svæði. Verið sé að setja Austurland í frost.

Innlent
Fréttamynd

Vegið að eigin veski

„Það eru ekki til peningar.“ „Við höfum ekki efni á þessu núna.“ Margur Íslendingur hefur heyrt þessar tvær setningar í gegnum barnæskuna og jafnvel unglingsár sín, en hver hefði átt von á því að þegar sama fólkið væri orðið fullorðið myndi það fá sama svar frá yfirvöldum þegar kemur að nauðsynjum eins og t.d. heilbrigðisþjónustu, vegagerð og alls konar sem m.a. tengist uppbyggingu á landsbyggðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Mjófirðingar í skýjunum og sjá fjörðinn sinn rísa á ný

„Mjófirðingar og allir sem hafa einhverja tengingu við Mjóafjörð eru náttúrulega bara í skýjunum. Þetta breytir hreinlega öllu fyrir Mjóafjörð. Núna mun hann rísa úr ösku sinni og verða aftur að byggilegum stað innan fjórðungsins,“ segir Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar um breytta forgangsröðun jarðganga.

Innlent
Fréttamynd

Á­bati Fjarðarheiðarganga metinn nei­kvæður um 37 milljarða króna

Núvirtur ábati Fjarðarheiðarganga milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar, sem ríkisstjórnin setti á ís í gær, er í greiningu Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri metinn neikvæður upp á 37 milljarða króna. Ábati vegna Fjarðaganga, sem í skýrslunni eru nefnd Mjóafjarðargöng, er metinn neikvæður um 23,5 milljarða króna, það er 13,5 milljörðum króna skárri.

Innlent
Fréttamynd

Fjarðarheiðargöng: Lífs­hætta, lof­orð og lokaðar dyr

Umræðan um jarðgangaáætlun hefur tekið nýja stefnu. Innviðaráðherra hefur lýst því yfir að náttúruvá sé forsenda nýrrar forgangsröðunar á samgönguáætlun. Þessi orð marka tímamót. Ef stjórnvöld ætla að standa við þessi orð, þá getur aðeins eitt verkefni verið efst á blaði: Fjarðarheiðargöng.

Skoðun
Fréttamynd

Fljótagöng sett í for­gang

Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán verða sett í forgang í nýrri jarðgangaáætlun sem kynnt verður í dag á fundi innviðaráðherra þar sem hann kynnir samgönguáætlun fyrir 2026 til 2040. Undirbúningur við næstu jarðgöng hefst 2026 og verður byrjað að bora 2027.

Innlent