Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar 24. október 2026 12:31 Þegar Loftbrúin var tekin upp árið 2020 var markmiðið skýrt: Að jafna aðstöðumun fólks eftir búsetu og gera íbúum landsbyggðarinnar kleift að ferðast á hagstæðari kjörum innanlands. Frá þeim tíma hafa flugfargjöld hækkað verulega. Nú stendur til að breyta fyrirkomulagi Loftbrúarinnar þannig að í stað 40% niðurgreiðslu af flugfargjaldi verði veittur fastur 7.000 króna afsláttur af hverjum fluglegg. Þessi fyrirhugaða breyting vekur hjá mér áhyggjur, ekki síst þegar horft er til þeirra sem þurfa reglulega að ferðast til höfuðborgarinnar vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Ráðherra hefur bent á að fólk geti tryggt sér hagstæðari flugfargjöld með því að bóka með góðum fyrirvara. Það er vissulega rétt að oft er hægt að fá ódýrari fargjöld með góðri skipulagningu. En raunveruleikinn er ekki alltaf svo einfaldur. Þegar góð skipulagning dugar ekki Ég þekki þetta af eigin raun. Í fyrra hafði ég bókað flug frá Egilsstöðum til Reykjavíkur með löngum fyrirvara vegna tveggja sérfræðilæknatíma. Flugfargjaldið var hagstætt og ferðin vel skipulögð. Þegar nær dró kom hins vegar slæm veðurspá og hætta á að flugið félli niður. Til að tryggja að ég kæmist í læknatímana þurfti ég að kaupa nýtt flug degi fyrr, á mun hærra verði. Upprunalega flugið féll síðan niður og fékkst það endurgreitt. Sú endurgreiðsla var hins vegar langt frá því að standa undir kostnaði við nýja flugmiðann. Hefði ég ekki gripið til þessara ráðstafana hefði ég misst af tveimur sérfræðilæknatímum og jafnvel þurft að greiða fyrir þá þrátt fyrir að komast ekki í þá. Þetta er raunveruleiki sem margir íbúar landsbyggðarinnar þekkja. Veður, takmarkað framboð flugsæta og tímasetningar sérfræðiþjónustu ráða því oft hvaða ferðamöguleikar eru í boði. Það er einfaldlega ekki alltaf hægt að skipuleggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu út frá ódýrasta flugfargjaldinu. Fjórar ferðir duga ekki alltaf Í störfum mínum fyrir Brakkasamtökin hef ég ítrekað orðið vör við þann fjárhagslega kostnað sem einstaklingar með arfgenga krabbameinsáhættu þurfa að bera vegna nauðsynlegs áhættueftirlits. BRCA-arfberar eru í aukinni áhættu á að greinast með ákveðnar tegundir krabbameina og þurfa því að sinna reglubundnu eftirliti. Það getur meðal annars falið í sér myndgreiningar, sérfræðilæknisheimsóknir og önnur áhættuminnkandi úrræði. Stór hluti þessarar sérhæfðu þjónustu er veittur á höfuðborgarsvæðinu. Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í ferðakostnaði vegna heilbrigðisþjónustu samkvæmt ákveðnum reglum, meðal annars með niðurgreiðslu allt að fjögurra ferða á ári. En hér þarf að horfa á heildarmyndina. BRCA-arfberar þurfa ekki eingöngu að sinna reglubundnu áhættueftirliti. Þeir geta, rétt eins og aðrir, þurft að leita annarrar heilbrigðisþjónustu, hvort sem það er vegna veikinda, rannsókna, meðferða eða annarra sérfræðilæknisheimsókna. Þá geta fjórar niðurgreiddar ferðir verið fljótar að klárast. Einstaklingur sem þarf að ferðast reglulega vegna áhættueftirlits getur því staðið frammi fyrir því að þurfa einnig að greiða fullt verð fyrir aðrar nauðsynlegar læknisferðir. Við slíkar aðstæður hefur Loftbrúin nýst sem mikilvæg viðbót til að draga úr ferðakostnaði, þótt hún hafi ekki verið sett á laggirnar sérstaklega í þeim tilgangi. Loftbrúin er ekki heilbrigðisúrræði Í samtölum Brakkasamtakanna við þingmenn um ferðakostnað vegna áhættueftirlits hefur sú spurning meðal annars komið upp hvort fólk geti ekki einfaldlega nýtt Loftbrúna til að greiða niður ferðir sem ekki fást niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands. En þar er mikilvægt að halda tvennu aðskildu. Loftbrúin var sett á laggirnar til að jafna almennan aðstöðumun íbúa eftir búsetu. Henni var ekki ætlað að koma í stað niðurgreiðslna vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Engu að síður hefur hún í reynd nýst einstaklingum sem þurfa að ferðast oftar en þær fjórar ferðir sem Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða. Mér finnst því ákveðin mótsögn fólgin í því að benda á Loftbrúna sem lausn á ferðakostnaði vegna heilbrigðisþjónustu en á sama tíma draga úr þeim stuðningi sem hún veitir þeim sem þurfa að kaupa dýrari flugfargjöld. Hvað þýðir breytingin í krónum? Ef flugfargjald kostar 50.000 krónur greiðir einstaklingur samkvæmt núverandi fyrirkomulagi Loftbrúarinnar 30.000 krónur eftir 40% niðurgreiðslu. Með föstum 7.000 króna afslætti verður eigin greiðsla hins vegar 43.000 krónur. Það er 13.000 króna hækkun fyrir einn fluglegg. Fyrir ferð fram og til baka getur hækkunin því numið 26.000 krónum, miðað við sama fargjald í báðar áttir. Þetta eru verulegar fjárhæðir fyrir einstaklinga sem þurfa að ferðast ítrekað vegna læknisheimsókna og geta ekki alltaf valið hagstæðustu ferðadagana. Við þetta getur bæst kostnaður vegna gistingar, ferða til og frá flugvöllum, vinnutaps og annarra útgjalda. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu á ekki að ráðast af búsetu Það er grundvallarmunur á því að velja að ferðast og því að þurfa að ferðast til að sinna nauðsynlegu heilbrigðiseftirliti. Íbúi á höfuðborgarsvæðinu getur oft sótt sérfræðilæknisþjónustu án verulegs ferðakostnaðar. Einstaklingur sem býr á Austurlandi, Vestfjörðum eða öðrum landsbyggðarsvæðum getur hins vegar þurft að greiða tugi þúsunda króna til að komast í sömu þjónustu. Þessi aðstöðumunur verður ekki leystur með því einu að benda fólki á að bóka flug fyrr. Í starfi Brakkasamtakanna hefur lengi verið lögð áhersla á mikilvægi þess að jafna aðgengi að nauðsynlegu áhættueftirliti, óháð búsetu. Ég tel tímabært að ferðir vegna skipulagðs áhættueftirlits einstaklinga með arfgenga krabbameinsáhættu verði niðurgreiddar sérstaklega, án þess að þær skerði rétt þeirra til niðurgreiðslu vegna annarra nauðsynlegra læknisferða. Einstaklingur sem þarf að mæta reglulega í eftirlit vegna aukinnar krabbameinsáhættu á ekki að þurfa að ganga á þann takmarkaða fjölda niðurgreiddra ferða sem honum stendur til boða ef hann veikist eða þarf að sækja aðra sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Jafnframt þarf að gæta þess að breytingar á Loftbrúnni auki ekki enn frekar þann aðstöðumun sem henni var upphaflega ætlað að draga úr. Við megum ekki skapa þær aðstæður að fólk þurfi að velta fyrir sér hvort það hafi efni á að mæta í nauðsynlegt krabbameinseftirlit eða aðra heilbrigðisþjónustu. Markmið áhættueftirlits er að greina krabbamein eins snemma og mögulegt er og bæta horfur þeirra sem eru í aukinni áhættu. Það er hagur einstaklinganna, fjölskyldna þeirra og samfélagsins alls að slíkt eftirlit sé aðgengilegt. Loftbrúin getur verið mikilvægur stuðningur, en hún á ekki að þurfa að bæta upp fyrir takmarkanir á niðurgreiðslu nauðsynlegra læknisferða. Jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á ekki að vera háð búsetu eða fjárhag. Það á að vera sjálfsagður hluti af íslensku heilbrigðiskerfi. Höfundur er formaður Brakkasamtakanna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggðamál Samgöngumál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar