Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir og Álfhildur Leifsdóttir skrifa

Það hefur lengi verið kallað eftir því að námsmat í grunnskólum verði skýrara og auðskiljanlegra og er það vel. Margir foreldrar og nemendur hafa saknað gamla talnakerfisins þar sem merking einkunnarinnar var nokkuð augljós: 70% árangur gaf 7, 80% gaf 8 og svo framvegis. En það er ekki það talnakerfi sem nú á að taka upp að fyrirskipan mennta- og barnamálaráðherra.

Nemandi sem sýnir 70% þekkingu á námsefninu fær ekki sjálfkrafa einkunnina 7. Í nýja matskvarðanum á talan 7 að merkja að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem ætlast er til samkvæmt hæfniviðmiðum aðalnámskrár við lok grunnskóla, þar sem talan ætti að vera 10 samkæmt eldri talnakvarða. Hugmyndafræðin sem bókstafakerfið byggir á stendur þannig að mestu leyti áfram. Bókstöfunum er einungis skipt út fyrir tölustafi í áformum ráðherra um notkun talnakvarða við lok grunnskólagöngu.

Vöndum til verka

Núgildandi aðalnámskrá byggir í grunninn á námskrá frá 2011 og greinasviðum frá 2013. Hæfniviðmiðin og bókstafakerfið voru þróuð í samhengi við hana og byggja á sömu hugmyndafræði um hæfnimiðað námsmat. Talnakerfið eins og við þekkjum það passar ekki þar inn. Þess vegna endurspeglar talan 7 í nýja talnakerfinu ekki 70% þekkingu heldur allt að 100% þekkingu. Heildarendurskoðun aðalnámsskrár er tímabær, hana þarf að uppfæra í takt við tímann, ákveða hvað á raunverulega að meta við lok grunnskóla og nýta matskvarða sem passar þeim markmiðum.

Í nýja matskvarðanum eru tölurnar 8-10 eru aðeins gefnar sé um umfram þekkingu á námsmarkmiðum að ræða eða framúrskarandi hæfni eða eins og ráðuneytið útskýrir: "einkunnir 8 - 10 lýsa stigvaxandi meiri dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu þeirrar hæfni sem hæfniviðmið flokksins ná yfir."

Forsendur þess að meta hæfni sem framúrskarandi, einkunnir 8 - 10, samkvæmt leiðbeiningum MMS er að að nemandi hafi lokið grunnskólanámi í faginu og nær að ljúka framhaldsskólaáföngum fyrir útskrift úr grunnskóla. Hins vegar segir á síðu ráðuneytisins: ‘Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er gerð krafa um að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga.’ Þarna er greinilegt misræmi milli stofnana í þeirri hraðsuðu sem þessi innleiðing er.

Breyttar leikreglur í miðjum leik

Nemendur sem eru nú í 10. bekk hafa gengið í gegnum grunnskólann í einu námsmatskerfi. Þeir ættu ekki að þurfa að ljúka skólagöngunni sem tilraunahópur fyrir kerfi sem enn er verið að útfæra. Það er verið að breyta leikreglunum hjá þeim á meðan á leiknum stendur.

Skynsamlegra væri að gefa sér tíma í heildarendurskoðun og innleiða síðan nýtt námsmat í áföngum, byrja á 4. og 7. bekk og innleiða kvarðann á þremur árum. Þá fengju skólar tíma til að samræma vinnubrögð, kennarar tíma til faglegrar þróunar og nemendur vissu frá upphafi hvaða viðmið gilda um námsmat þeirra.

Í umsagnarferli um þessar breytingar bárust yfir 100 umsagnir og voru flestar þeirra gagnrýnar, meðal annars vegna óskýrleika breytinganna og þess hraða sem stefnt er að við innleiðinguna. Á sama tíma stígur ráðherra málaflokksins fram og gefur skýr skilaboð um að breytingarnar verði keyrðar í gegn þrátt fyrir þessa gagnrýni. Þegar svo stór hluti umsagna lýsir áhyggjum af sömu atriðum, ættu viðbrögðin frekar að vera að staldra við, hlusta og vanda betur til verka, en ekki að stíga fastar á bensíngjöfina.

Hraði er ekki mælikvarði á umbætur. Ef markmiðið er raunverulega að bæta námsmat í grunnskólum þarf að byrja á réttum enda, fara í heildstæða endurskoðun, fá fagfólkið að borðinu og gefa því tíma til að vinna verkið almennilega.

Álfhildur Leifsdóttir er grunnskólakennari.

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir er menntunarfræðingur.





Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×