Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar 3. september 2026 09:31 Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB ættu að vera stjórnvöldum umhugsunarefni, ekki bara vegna málsins sjálfs heldur vegna þess hversu skýr skil urðu milli höfuðborgar og landsbyggðarinnar. Við getum rætt Evrópusambandið, sjávarútveginn, landbúnaðinn, gjaldmiðilinn og fullveldið. En þegar landakortið skiptist jafn skýrt eftir búsetu er öllum ljóst að þetta snýst ekki bara um spurningu á blaði. Hvernig stendur á því að íbúar horfa á framtíð sína með svo ólíkum augum? Ísland hefur jú smán saman orðið að landi tveggja þjóða, höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Annars vegar er það höfuðborgarsvæðið þar sem stjórnsýslan, ráðuneytin, stærstu stofnanir ríkisins, fjármálakerfið, fjölmiðlarnir, sérfræðiþjónustan og stór hluti menningar og menntunar hefur safnast saman. Hins vegar er landsbyggðin þar sem stór hluti þeirra auðlinda sem þjóðarbúið byggir afkomu sína á er nýttur. Þar eru sjávarbyggðirnar, landbúnaðurinn, virkjanirnar, orkuframleiðslan, fiskeldið og stór hluti ferðaþjónustunnar. Þaðan er oft kallað eftir virkri hlustun. Byggðastefna á pappír er ekki nóg Í opinberri byggðaáætlun ríkisins er beinlínis stefnt að því að jafna aðgengi að þjónustu, jafna tækifæri til atvinnu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Þar er einnig lögð áhersla á að áhrif opinberrar stefnumótunar á einstakar byggðir séu metin. En er það raunin? Byggðastefna getur ekki verið sérstakt skjal sem stjórnvöld draga fram þegar rætt er um landsbyggðina. Hún verður að vera rauður þráður í allri ákvarðanatöku ríkisins. Alveg saman hvor um ræðir skipulag á heilbrigðisþjónustu, ákvarðanir um staðsetningu starfa, fjárveitingar til uppbyggingar og viðhalds vega og annarra framkvæmda. Þegar innanlandsflug og almenningssamgöngur eru skornar niður eða verða svo dýrar að almenningur ræður vart við þær. Þegar Vegagerðin sker niður almenningssamgöngur er það byggðamál. Landsbyggðin á ekki að vera hráefnislager höfuðborgarinnar Á landsbyggðinni eru virkjanirnar, miðlunarlónin og flutningsmannvirkin, þar er fiskurinn unninn og landið nýtt. Þar eru áhrifin af stóriðju, fiskeldis, ferðaþjónustu og orkuframkvæmda sýnileg í nærumhverfi fólks. Samt upplifa íbúar þessara svæða gjarnan að umræðan um nýtingu auðlindanna fari fram annars staðar og út frá öðrum forsendum. Landsbyggðin getur ekki verið hráefnislager fyrir þjóðarbúið en þurfa síðan að berjast fyrir sjálfsagðri grunnþjónustu. Sár gróa en örin sitja eftir Niðurstöður kosninganna sköpuðu ekki þessa gjá heldur gerðu hana mjög svo bersýnilega. Þegar afstaða fólks til stórs framtíðarmáls þjóðarinnar skiptist jafn greinilega eftir búsetu eigum við ekki að afgreiða það sem sérvisku, hræðslu eða skort á upplýsingum hjá öðrum hvorum hópnum. Kosningabarátta líður hjá, tilfinningar róast og sárin munu gróa. En sár skilja eftir ör. Það ör sem þessar kosningar gætu skilið eftir er tilfinningin um að við séum ekki lengur alveg ein þjóð með sameiginlega sýn á framtíðina, heldur tvær þjóðir sem upplifa landið, ríkið og eigin hagsmuni með ólíkum hætti. Kosningarnar eru búnar, skilaboðin sem birtust á kortinu hverfa ekki með síðasta talda atkvæðinu og það er ekki hægt að líta á þau sem tímabundna pólitíska skautun. Ef við viljum áfram tala um eina íslenska þjóð, með sameiginlega framtíð og sameiginlega hagsmuni, verðum við líka að haga stjórnmálum okkar þannig að fólk um allt land upplifi að það tilheyri sama samfélagi. Á Menningarnótt í Reykjavík bauð menningarmálaráðuneytið upp á brauðtertu til að fagna íslenskri matarmenningu. Brauðtertan sjálf skiptir auðvitað litlu máli. En hún er ágætis táknmynd fyrir þá tilfinningu sem við á landsbyggðinni finnum stundum fyrir þegar ríkið fagnar, fjárfestir og sýnir sig er miðpunkturinn gjarnan höfuðborgin. Landsbyggðin fær svo að fylgjast með úr fjarlægð. Við á landsbyggðinni leggjum til hráefnið, orkuna, fiskinn, landið og verðmætasköpunina. Við viljum líka upplifa að við sitjum við sama borð þegar gæðunum er skipt.Ég skal játa að ég er mjög matsár almennt og brauðtertan er jú auðvitað bara brauðterta. En eigum við ekki öll rétt á sneið samt? Höfundur er varaþingmaður Framsóknar í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónína Brynjólfsdóttir Byggðamál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar