Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Agnar Már Másson skrifar 4. nóvember 2026 15:37 Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra. Vísir/anton brink Innviðaráðuneytið greinir frá því að Eyjólfur Ármannsson ráðherra hafi samtals úthlutað rúmum 27 milljónum króna í styrki til fjórtán verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.
Í tilkynningu segir að styrkirnir séu veittir á grundvelli byggðaáætlunar, nánar tiltekið aðgerðar B.7 er varðar óstaðbundin störf. Markmiðið er sagt vera að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni en þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni, að því er frá greinir í tilkynningunni. Í mars 2026 var greint frá því þegar ráðherrann úthlutaði 50 milljónum til 26 vinnustaðaklasa, en vinnustaðaklasi er skilgreindur sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða. Styrkhæfir voru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins en styrkir skiptast í ólíka flokka eftir svæðum, íbúafjölda og eftir því hversu rótgróin starfsemin er, segir í tilkynningunni. Að sinni hafi minni staðir verið í forgangi þar sem atvinnulíf er einhæft, en einnig svæði sem hafa orðið fyrir verulegum áföllum í atvinnulífi eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum. Eftirtalin verkefni hlutu, samkvæmt ráðuneytinu, styrk til að byggja upp vinnustaðaklasa og styðja við sjálfbærni þeirra. Samvinnuhús á Stöðvarfirði. Umsækjandi: Sköpunarmiðstöðin. Styrkur: 2.462.313 kr. Kaupvangur á Vopnafirði. Umsækjandi: Vopnafjarðarhreppur. Styrkur: 4.000.000 kr. Golan í Grindavík. Umsækjandi: Grindavíkurbær. Styrkur: 4.000.000 kr. Forgangsröðun b. Fjölgun plássa á forgangssvæði: Kaupvangur á Vopnafirði. Umsækjandi: Vopnafjarðarhreppur. Styrkur: 624.000 kr. Forgangsröðun c. Rekstrarstyrkur á forgangssvæði: Þróunarsetrið á Hólmavík. Umsækjandi: Strandabyggð. Styrkur: 1.000.000 kr. Samvinnurými á Stöðvarfirði. Umsækjandi: Sköpunarmiðstöðin. Styrkur: 1.000.000 kr. Skuldarhalli á Vopnafirði. Umsækjandi: Skuldarhalli ehf. Styrkur: 1.000.000 kr. Forgangsröðun d. Ný uppbygging á miðlungssvæði: Verbúðin í Bolungarvík. Umsækjandi: Rörás ehf. Styrkur: 4.000.000 kr. Vinnustaðaklasinn í Hofsós frystihúsi. Umsækjandi: Hofsós frystihús ehf. Styrkur: 4.000.000 kr. Forgangsröðun e. Framlag vegna nýrra plássa gegn langtímaskuldbindingu: Engar umsóknir bárust vegna framlaga vegna nýrra plássa í þessari forgangsröðun. Forgangsröðun f. Rekstrarstuðningur á miðlungssvæðum: Gamli bankinn á Ísafirði. Umsækjandi: Fljót ehf. Styrkur: 1.000.000 kr. Samvinnurými Röst á Hellissandi. Umsækjandi: Snæfellsbær. Styrkur: 1.000.000 kr. Forgangsröðun g. Einskiptisframlag vegna nýrrar starfsemi á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns: Ein umsókn barst sem ekki var samþykkt. Forgangsröðun g. Rekstrarstuðningur á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns: Fjölheimar á Selfossi. Umsækjandi: Háskólafélag Suðurlands á Selfossi. Styrkur: 1.000.000 kr. Konvin-setrið að Ásbrú í Reykjanesbæ. Umsækjandi: Konvin ehf. Styrkur: 1.000.000 kr. Rýmið á Akranesi. Umsækjandi: Muninn kvikmyndagerð ehf. Styrkur: 1.000.000 kr. Umsóknarfrestur var til 23. september og alls bárust 19 umsóknir um styrki að upphæð tæpum 69 milljónum, segir í tilkynningunni. Þriggja manna valnefnd hafi verið falið að meta allar umsóknir og síðan gert tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja.
Byggðamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira