Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifa 21. október 2026 12:17 Fyrr í þessum mánuði átti kvikmyndin The Social Reckoning að koma í íslensk kvikmyndahús. Við höfum árum saman unnið að stafrænni velferð barna og fjallað um ávanabindandi hönnun tæknirisanna, og biðum myndarinnar því með eftirvæntingu. The Social Reckoning er ný mynd eftir Aaron Sorkin, handritshöfund The Social Network. Hún segir sögu Frances Haugen, verkfræðings hjá Facebook sem árið 2021 afhenti blaðamanni Wall Street Journal þúsundir innri skjala fyrirtækisins. Skjölin urðu þekkt sem The Facebook Files. Þau sýndu að fyrirtækið vissi af skaðlegum áhrifum miðla sinna en setti þátttöku notenda og hagnað ofar öryggi þeirra. Þetta er saga hugrakkrar konu sem lagði starfsferil sinn að veði svo almenningur fengi að vita sannleikann. Í kjölfar þess að gögnin voru gerð opinber hafa fjölmörg mál verið höfðuð gegn samfélagsmiðlafyrirtækjum vegna meintra skaðlegra áhrifa miðlanna og ávanabindandi hönnunar þeirra. Í mars komst kviðdómur í Los Angeles að þeirri niðurstöðu að Meta og YouTube hefðu sýnt af sér vanrækslu með því að hanna miðla sína ávanabindandi og að fyrirtækin hefðu vitað að hönnunin væri hættuleg ungu fólki. Daginn áður var Meta dæmt í Nýju-Mexíkó til að greiða 375 milljónir dollara. Í ágúst var Meta síðan dæmt til að greiða 567 milljónir dollara til viðbótar og gera breytingar á því hvernig ungmenni geta notað Facebook og Instagram. Dómarinn byggði á því að miðlarnir hefðu valdið almannaskaða og stuðlað að geðheilbrigðisvanda barna og ungmenna. Sama mánuð náðist umfangsmikið samkomulag milli Meta og 29 bandarískra ríkja um 17 milljarða dollara greiðslu frá Meta og auknar öryggisráðstafanir fyrir börn og ungmenni. Þúsundir sambærilegra mála eru enn til meðferðar. Á sama tíma er rætt á Alþingi og innan Evrópusambandsins hvort setja eigi viðeigandi aldurstakmarkanir á samfélagsmiðla. Þessi umræða snertir hvert einasta heimili á landinu. Hvers vegna fáum við ekki að sjá The Social Reckoning? Myndin er nú sýnd í Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi, Bretlandi og víðar. Hér á landi var hún boðuð í kvikmyndahús í október, en ekkert hefur enn orðið af því.Við höfum rætt við íslensk kvikmyndahús, sem hafa tekið málinu vel, en ekki hefur fengist samþykki erlendis frá að sýna myndina á íslandi. Kannski réð dræm aðsókn fyrstu sýningarhelgina í Bandaríkjunum úrslitum. Kannski hafa misjafnir dómar gagnrýnenda haft áhrif, þótt viðtökur áhorfenda hafi verið heldur jákvæðari. Kannski hefur myndin einfaldlega ekki náð nægilegri athygli. En hvað ef ástæðan er önnur? Hvað ef við erum að missa af mikilvægri samfélagsumræðu vegna þess að mynd sem varpar ljósi á óþægilegar staðreyndir fær ekki tækifæri til að ná til almennings? Ákvörðunin skiptir máli því sjaldan hefur umfjöllunarefni kvikmyndar átt jafn brýnt erindi við samfélagið okkar. Því er mikilvægt að gefa almenningi tækifæri til að sjá mynd sem fjallar um málefni sem snerta okkur öll, ekki síst börnin okkar. Þetta snýst ekki eingöngu um eftirspurn eða miðasölu, heldur einnig um samfélagslega ábyrgð dreifingaraðila og kvikmyndahúsa. Sýning myndarinnar gæti skapað vettvang fyrir nauðsynlega umræðu, aukið vitund almennings og stuðlað að jákvæðum samfélagslegum breytingum. Með því að koma myndinni á framfæri væri jafnframt sýndur stuðningur við það hugrekki sem Frances Haugen hefur sýnt með því að stíga fram og vekja athygli á starfsháttum samfélagsmiðlafyrirtækja og áhrifum þeirra. Neytendur eiga rétt á að vita hvernig vörurnar og tæknin sem þeir og börnin þeirra nota daglega eru hannaðar og hvaða áhrif þær geta haft á andlega heilsu og líðan. Margt við The Social Reckoning minnir á aðdraganda sýningar kvikmyndarinnar Sound of Freedom, sem upphaflega stóð ekki til að sýna á Íslandi. Sumarið 2023 gekk erfiðlega að koma myndinni í íslensk kvikmyndahús, en í kjölfar mikillar umræðu og eftirspurnar var hún frumsýnd hér á landi innan við mánuði síðar. Við vonum að sama gerist nú. Við skorum því á alla sem geta haft áhrif á dreifingu myndarinnar að beita sér fyrir því að hún verði sýnd í íslenskum kvikmyndahúsum, þó ekki væri nema í takmarkaðan tíma eða á sérsýningum. Við erum tilbúnar að leggja okkar af mörkum, til dæmis með þátttöku í sérsýningu og umræðum í kjölfarið. Komist myndin ekki í bíó, vonum við að hún verði að minnsta kosti aðgengileg á íslenskum streymisveitum sem fyrst. Við erum mæður sem vilja stuðla að breyttum samfélagslegum viðmiðum um skjá- og snjallsímanotkun. Við leggjum áherslu á að neytendur, ekki síst foreldrar, hafi aðgang að áreiðanlegum upplýsingum um hvernig stafrænar vörur og þjónusta eru hannaðar og hvaða áhrif notkun þeirra getur haft á börn og ungmenni. Markmið okkar er að efla vitund, upplýsta ákvarðanatöku og heilbrigðara stafrænt umhverfi fyrir komandi kynslóðir. Höfundar eru mæður og sérfræðingar á sviði stafrænnar velferðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bíó og sjónvarp Símanotkun barna Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun