Skoðun

Þegar for­stjórinn smíðar hug­búnaðinn sjálfur

Ása Rún Björnsdóttir og Óttar Guðmundsson skrifa

Það var eitt vandamál sem hafði lengi farið í taugarnar á forstjóra fyrirtækis. Hann vissi að hægt væri að leysa það með tiltölulega einföldum hætti, en verkefnið hafði aldrei komist nógu ofarlega á forgangslista fyrirtækisins.

Viðskiptavinir voru með þjónustusamninga við fyrirtækið sem kváðu á um ákveðinn fjölda vinnustunda í hverjum mánuði. Hins vegar var ekki til staðar innan fyrirtækisins verklag til að fylgjast með þeim vinnutímum sem starfsfólkið innti af hendi og fyrir vikið fór oft meiri tími í verkefnin en samningar gerðu ráð fyrir, án þess að sú vinna væri rukkuð sérstaklega. Fyrirtækið var í raun að borga með þessum samningum.

Forstjórinn er ekki forritari en þekkir reksturinn, kerfin sín og gögnin sem fyrirtækið vinnur með. Hann ákvað að nýta gervigreind til að þróa lausnina sjálfur til að takast á við þetta vandamál. Forritið sem hann þróaði fletti upp stöðunni hjá viðskiptavinum fyrirtækisins alla morgna og sendi yfirlit til starfsfólksins sem málið varðaði. Starfsfólkið fékk betri yfirsýn með aðgengi að mælaborðum og gat komið í veg fyrir að vinna of marga tíma fyrir tiltekna kúnna.

Forritið var einfalt og virkaði vel, hinsvegar var á því einn galli. Eitt af því sem honum yfirsást var að í þessu ferli þá voru upplýsingar um viðskiptavini fyrirtækisins nú allt í einu orðnar aðgengilegar hverjum sem er á Internetinu.

Betra að flýta sér hægt

Það sem gerir gervigreindina svo spennandi er að fólk, líkt og forstjórinn, sem þekkir vandamálin og helstu áskoranir í rekstri fyrirtækja best, getur nú prófað hugmyndir sínar og smíðað fyrstu útgáfur af lausnum án aðkomu sérfræðinga. Forritun sem tók áður margar vikur eða jafnvel mánuði er nú hægt að koma í frumgerð á örfáum dögum. Þetta skapar mikla möguleika þar sem hægt er að sjá og prófa hvað virkar áður en fullbúin lausn er útbúin.

Það þarf þó að hafa varann á því að gervigreindin er yfirleitt sammála um að hugmynd notandans sé góð og skrifar iðulega það sem beðið er um. Hún einblínir á vandamálið sem er fyrir hendi en biður ekki endilega um allar hliðar hugmyndarinnar eða kallar eftir heildarmynd lausnarinnar, líkt og hvar gögnin eiga að liggja, hver má komast í þau, hvað gerist þegar eitthvað bilar og hver á að fylgjast með þessu þegar lausnin er komin í daglegan rekstur. Þetta eru spurningar sem sérfræðingar hafa vanið sig á að spyrja áður en lengra er haldið.

Rekstur og áframhaldandi þróun eru hluti af því sem þarf að hugsa um ef lausnin á að virka til lengri tíma litið. Ný lausn sem virkar vel í byrjun getur orðið dýr í rekstri ef viðhald og þróun voru ekki hugsuð frá upphafi. Ef forritarar hverfa úr verkefninu hverfur mikilvæg þekking og rýni og réttu spurningarnar eru ekki spurðar. Það er frábært að starfsfólk geti stuðst við gervigreindina til að koma hugmyndum sínum í mótun, en í því felst líka sú áhætta að starfsfólk sé farið að nota alls konar lausnir sem enginn í tæknideildinni veit að eru í umferð.

Samhliða þessu þarf því að tryggja að lausnir sem eru komnar í daglegan rekstur fái ábyrgðaraðila og þá umgjörð sem þarf til að hægt sé að treysta á þær til lengri tíma.

Nokkrar spurningar sem vert er að spyrja

Áður en lausn sem hefur verið smíðuð innanhúss verður hluti af daglegum rekstri er mikilvægt að huga að eftirfarandi atriðum:

  1. Hvar eru gögnin vistuð? Er mögulegt að einhver óviðkomandi geti komist í þau?
  2. Eru lykilorð eða aðgangslyklar geymd í kóðanum sjálfum eða þar sem hann er vistaður? Hver hefur aðgang að kóðanum og hver væri skaðinn ef slíkar upplýsingar yrðu opinberar?
  3. Er rekjanleiki í kerfinu? Er hægt að sjá hver fletti upp hverju og hvenær? Þarf þess?
  4. Hvað gerist þegar lausnin bilar? Fréttir einhver af því eða liggur hún niðri þar til það spyrst út?
  5. Hver tekur ákvarðanir út frá lausninni? Hversu alvarlegt væri ef upplýsingarnar væru rangar?
  6. Eru persónuupplýsingar hluti af lausninni og stenst meðferð þeirra persónuverndarlög?
  7. Ef sá sem smíðaði lausnina hættir á morgun, getur þá einhver annar haldið henni við?

Ef svörin við þessum spurningum eru óljós er lausnin ekki tilbúin að verða hluti af daglegum rekstri. Það þýðir ekki að hætta eigi við verkefnið, heldur þarf að tryggja að lausnin sé örugg.

Höldum áfram að smíða

Það væri synd ef niðurstaðan af þessari þróun yrði sú að allar hugmyndir þyrftu áfram að fara fyrst í gegnum tæknideildina og bíða á verkefnalista eftir hentugum tíma. Það felast mikil tækifæri fyrir nýsköpun innan fyrirtækja í því að leyfa starfsfólki að prófa sig áfram með því að nota nýja tækni, en síðan sé fengið fagfólk til að rýna í verkið þegar frumgerðin er farin að taka á sig mynd. Til þess þarf að innleiða verkferla þar sem hægt er að prófa hugmyndir án þess að eiga á hættu að gögnin leki út á netið.

Það þarf hvorki að vera flókið né dýrt miðað við það sem er í húfi og það má alls ekki slökkva á sköpunargáfunni hjá fólkinu sem er lausnamiðað. Hvað varð svo um forstjórann? Jú, hann er enn að smíða innan öruggs umhverfis. Framtíðin snýst um að fólk geti sjálft smíðað lausnir að því gefnu að traustar tæknilegar undirstöður séu til staðar.

Höfundar eru rekstrarstjóri og gagnaverkfræðingur. 




Skoðun

Sjá meira


×