Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar 21. október 2026 17:03 Þann 30. október taka gildi nýir viðskiptaskilmálar Meta, móðurfélags Facebook og Instagram. Samkvæmt þeim má Meta nota sjálfvirka söfnunarforrit til að sækja efni af vefsíðum sem tengjast viðskiptareikningum hjá fyrirtækinu, og nota það til að þjálfa vörur sínar, þar á meðal gervigreind. Undir þetta falla nær allir fjölmiðlar, fyrirtæki, félög og stofnanir sem halda úti síðu á Facebook. Það er engin leið að hafna skilmálunum nema hætta að nota miðla Meta í viðskiptaskyni. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, sem rekur Vísi, lýsti þessu í samtali við RÚV í dag. Hann bendir á að hér sé litið svo á að samþykki felist í því að gera ekki neitt, og að fæst fyrirtæki átti sig á því. Á milli þrjú og fimm prósent heimsókna á Vísi koma í gegnum Facebook. Það er ekki stór hluti, en nógu stór til að enginn vill missa hann. Og nú hyggst Meta láta fyrirtæki greiða fyrir að deila tenglum. Kolbeinn líkir þessu við einelti á skólalóð: Komdu með nestispeningana eða ég ber þig. Samlíkingin er óþægilega nákvæm. Hver ræður vefnum þínum? Meta segir að ekkert breytist í raun, heldur hafi ákvæði sem áður voru á víð og dreif verið sameinuð, og að vefeigendur geti enn lokað á söfnunarforrit með hefðbundnum hætti. Lögfræðingar sem bandaríska fjölmiðlarannsóknasetrið Nieman Lab ræddi við eru ekki jafn vissir. James Grimmelmann, prófessor við Cornell háskóla, segir að skilmálarnir gætu heimilað Meta að þjálfa gervigreind á öllu efni vefsins, jafnvel í samkeppni við fjölmiðilinn sjálfan. Fyrir Ísland skiptir þetta meira máli en fyrir flest önnur lönd. Íslenskur texti er takmörkuð auðlind. Fréttir, greinar og skrif á íslensku eru einmitt það efni sem gervigreind þarf til að læra málið okkar. Í síðustu viku skilaði starfshópur forsætisráðherra skýrslunni Gervigreind til góðs, þar sem gervigreind á íslensku er eitt þriggja forgangsmála. Ef þjálfunargögnin okkar renna ókeypis til erlendra tæknirisa á meðan við reynum að byggja upp eigin getu, erum við að gefa frá okkur það sem við eigum verðmætast. Útgöngukostnaðurinn Fullveldi á stafrænni öld snýst ekki um að eiga allt sjálf. Það snýst um hvað það kostar okkur að komast af án annarra. Í dag er sá kostnaður hár. Fjölmiðlar, íþróttafélög, sveitarfélög, smáfyrirtæki og góðgerðarfélög eiga nær allt sitt samband við almenning í gegnum einn bandarískan risa. Ég hef sjálfur fengið að finna fyrir því hvað gerist þegar sá risi ákveður að takmarka dreifingu. Reynslan erlendis sýnir valdahlutföllin. Þegar Kanada setti lög árið 2023 sem áttu að láta tæknirisa greiða fjölmiðlum fyrir fréttaefni svaraði Meta með því að loka á fréttir í landinu. Eitt lítið land getur ekki unnið þennan slag eitt og sér. Sex ára barn ræður ekki við tólf ára hrekkjusvín. En það þýðir ekki að við séum varnarlaus. Ég sé þrjár leiðir sem styðja hver aðra. Í fyrsta lagi samstaða. Íslenskir fjölmiðlar eiga að standa saman, eins og Kolbeinn kallar eftir, og helst með norrænum systurmiðlum. Ein rödd frá Norðurlöndum vegur þyngra en margar litlar. Í öðru lagi reglur. Lög Evrópusambandsins um stafræna þjónustu (Digital Services Act), sem leggja skyldur á stærstu netvettvangana, hafa ekki enn verið tekin upp í EES samninginn. Þar eru Íslendingar verr settir en nágrannar okkar í Evrópusambandinu. Það þarf að breytast sem fyrst. Í þriðja lagi valkostir. Í janúar kom út íslenski samfélagsmiðillinn Slapp, sem tæknifyrirtækið Vestra smíðaði. Þar skrá notendur sig inn með rafrænum skilríkjum, sem útilokar falsaða reikninga og vélmenni. Ég veit ekki hvort Slapp eða einhver annar verður íslenski valkosturinn. En hugsunin er rétt. Samfélagsmiðill er orðinn grunninnviður, rétt eins og greiðslumiðlun, og þar vinnur Seðlabankinn nú að innlendri greiðsluleið af nákvæmlega sömu ástæðu. Opinberar stofnanir gætu riðið á vaðið. Ef ríki og sveitarfélög birtu tilkynningar sínar fyrst á eigin vefjum og á innlendum eða opnum vettvangi, og aðeins síðan á Facebook, myndi útgöngukostnaðurinn lækka strax. Enginn þarf að banna neitt. Það þarf bara að tryggja að við getum farið ef við þurfum. Hvað kostar að gera ekkert? Kolbeinn segir að þetta ætti að vera tækifæri en ekki ógn. Ég er sammála. Tæknirisarnir þurfa efnið okkar. Íslenskt mál, íslenskar fréttir og íslensk þekking eru einhvers virði, og það er sjálfsagt að greitt sé fyrir þau. En það gerist ekki ef við bíðum. Eftir tíu daga taka skilmálarnir gildi. Samþykkið felst í því að gera ekki neitt. Spurningin er hvort við ætlum enn eina ferðina að rétta fram nestispeningana. Höfundur er stofnandi Alvitur.is og starfar að þróun og stefnumótun á sviði gervigreindar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigvaldi Einarsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun