Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar 21. október 2026 08:01 Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur lagt fram tvær tillögur sem nú eru opnar til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda. Önnur varðar átta verndarsvæði og tilheyrandi virkjunarhugmyndir sem lagt er til að fari í verndarflokk. Hin varðar flokkun sjö vindorkuhugmynda. Samorka telur ástæðu til að gera athugasemdir við báðar tillögur en ekki síður við það ósamræmi sem birtist í vinnubrögðum sömu verkefnisstjórnar. Verndartillagan byggir alfarið á mati frá 2011 Tillagan um verndarflokk er lögð fram í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 36/2023. Svæðin átta eru Jökulsá á Fjöllum, Geysir, Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Gjástykki, Hólmsá, Jökulfall og Hvítá og Tungnaá. Kostirnir voru ekki metnir að nýju og byggir tillagan á niðurstöðum faghópa og verkefnisstjórnar í 2. áfanga rammaáætlunar sem lauk árið 2011. Síðan 2011 hefur lagaumgjörð rammaáætlunar breyst verulega. Markmið laga nr. 48/2011 tekur nú til orkuöryggis almennings, orkuskipta og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Taka skal mið af vatnaáætlun, sem var ekki til árið 2011 og með reglugerð nr. 970/2026 liggur fyrir grunnur að mati á óbyggðum víðernum. Ekkert af þessu var lagt til grundvallar eða skoðað. Vindorkukostir endurmetnir út frá nýjum lögum Í tillögunni um sjö vindorkuhugmyndir fer sama verkefnisstjórn allt aðra leið. Faghóparnir endurmeta kostina meðal annars út frá breyttum lögum, nýrri 10. gr. a um sérstök sjónarmið við mat vindorkuhugmynda og nýjum gögnum að einhverju leyti. Verkefnisstjórn rekur sérstaklega að með lagabreytingunum hafi bæst við markmið um orkuöryggi almennings, orkuskipti og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Hér er talin full ástæða til að endurmeta kostina út frá nýjum lögum þó fyrra mat sé frá í fyrra. Niðurstaðan er að Garpsdalur fari í nýtingarflokk, Alviðra og Hnotasteinn í biðflokk, en Hrútmúlavirkjun, Mosfellsheiðarvirkjun I og II og Sólheimar í verndarflokk. Það er rétt nálgun að meta virkjunarkosti út frá gildandi lögum og nýjustu gögnum. Spurningin er hvers vegna sama nálgun á ekki við um verndartillöguna. Verkefnisstjórn starfar samkvæmt lögum og lögin gilda jafnt um báðar tillögur. Einnig ástæða til athugasemda við vindorkutillöguna Þótt nálgunin sé réttari er full ástæða til að gera athugasemdir við niðurstöðuna. Orkuöflun fær lítið vægi. Þeir þættir sem horfa til orkuöflunar og bætt var við lögin eru metnir að mjög takmörkuðu leyti. Markmið stjórnvalda um orkuskipti koma hvergi fyrir í mati faghópa né í niðurstöðum verkefnisstjórnar um einstaka kosti. Hvergi er í matinu horft til hagsmuna sem byggja á nýtingu orkunnar. Það á t.d. við um atvinnuuppbyggingu í anda atvinnustefnu stjórnvalda og orkuskiptin almennt. Höfundur er lögfræðingur Samorku. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Katrín Helga Hallgrímsdóttir Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur lagt fram tvær tillögur sem nú eru opnar til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda. Önnur varðar átta verndarsvæði og tilheyrandi virkjunarhugmyndir sem lagt er til að fari í verndarflokk. Hin varðar flokkun sjö vindorkuhugmynda. Samorka telur ástæðu til að gera athugasemdir við báðar tillögur en ekki síður við það ósamræmi sem birtist í vinnubrögðum sömu verkefnisstjórnar. Verndartillagan byggir alfarið á mati frá 2011 Tillagan um verndarflokk er lögð fram í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 36/2023. Svæðin átta eru Jökulsá á Fjöllum, Geysir, Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Gjástykki, Hólmsá, Jökulfall og Hvítá og Tungnaá. Kostirnir voru ekki metnir að nýju og byggir tillagan á niðurstöðum faghópa og verkefnisstjórnar í 2. áfanga rammaáætlunar sem lauk árið 2011. Síðan 2011 hefur lagaumgjörð rammaáætlunar breyst verulega. Markmið laga nr. 48/2011 tekur nú til orkuöryggis almennings, orkuskipta og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Taka skal mið af vatnaáætlun, sem var ekki til árið 2011 og með reglugerð nr. 970/2026 liggur fyrir grunnur að mati á óbyggðum víðernum. Ekkert af þessu var lagt til grundvallar eða skoðað. Vindorkukostir endurmetnir út frá nýjum lögum Í tillögunni um sjö vindorkuhugmyndir fer sama verkefnisstjórn allt aðra leið. Faghóparnir endurmeta kostina meðal annars út frá breyttum lögum, nýrri 10. gr. a um sérstök sjónarmið við mat vindorkuhugmynda og nýjum gögnum að einhverju leyti. Verkefnisstjórn rekur sérstaklega að með lagabreytingunum hafi bæst við markmið um orkuöryggi almennings, orkuskipti og stefnu stjórnvalda um orkuöflun. Hér er talin full ástæða til að endurmeta kostina út frá nýjum lögum þó fyrra mat sé frá í fyrra. Niðurstaðan er að Garpsdalur fari í nýtingarflokk, Alviðra og Hnotasteinn í biðflokk, en Hrútmúlavirkjun, Mosfellsheiðarvirkjun I og II og Sólheimar í verndarflokk. Það er rétt nálgun að meta virkjunarkosti út frá gildandi lögum og nýjustu gögnum. Spurningin er hvers vegna sama nálgun á ekki við um verndartillöguna. Verkefnisstjórn starfar samkvæmt lögum og lögin gilda jafnt um báðar tillögur. Einnig ástæða til athugasemda við vindorkutillöguna Þótt nálgunin sé réttari er full ástæða til að gera athugasemdir við niðurstöðuna. Orkuöflun fær lítið vægi. Þeir þættir sem horfa til orkuöflunar og bætt var við lögin eru metnir að mjög takmörkuðu leyti. Markmið stjórnvalda um orkuskipti koma hvergi fyrir í mati faghópa né í niðurstöðum verkefnisstjórnar um einstaka kosti. Hvergi er í matinu horft til hagsmuna sem byggja á nýtingu orkunnar. Það á t.d. við um atvinnuuppbyggingu í anda atvinnustefnu stjórnvalda og orkuskiptin almennt. Höfundur er lögfræðingur Samorku.
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun