„Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar 21. október 2026 09:16 Nýtt námsmat, ný aðalnámskrá, ný námsgögn, Matsferill, nýr Nemendagrunnur og aukin endurmenntun. Nýtt er betra og skilar betri kennslu, auknum námsárangri og meiri stuðningi við nemendur. Not. Þetta hljómar stórkostlega. Í Útópíu, landi sem er ekki til, svona ef einhver vissi það ekki. Ég er kennari og deildarstjóri í litlum grunnskóla. Þar er heill her af kennurum og stjórnendum sem bíður spenntur eftir næstu fyrirmælum frá ráðuneytinu, tilbúinn að innleiða hvað sem er, hvenær sem er. Eða þannig. Við erum fá, verkefnin mörg og oftar en ekki virðist stundum gleymast að við eigum víst líka að kenna nemendum. Æ, þið vitið, þegar kennarinn fer inn í stofuna og talar í 40 mínútur og nemendur gera ekkert nema að hlusta. Við kennarar erum ekki á neinum sérsamningi við gaurinn þarna uppi frekar en aðrir. Okkar sólarhringur er líka bara 24 klukkustundir. Engin tilkynning hefur að minnsta kosti borist um annað. Nýtt námsmat – og svo byrjum við aftur! Við erum þrjár úr mínum skóla sem höfum setið fimm innleiðingarfundi vegna nýs námsmats. Samanlagt höfum við um 70 ára reynslu af skólastarfi og erum sammála um að margt í þessari innleiðingu sé óljóst og illa undirbúið. Okkur hefur verið sagt að skólarnir eigi sjálfir að ákveða vægi námsþátta í ár, en að ráðuneytið hyggist svo samræma það á næsta ári. Við kennararnir eigum sem sagt að vinna þessa umfangsmiklu vinnu í ár og svo breytir ráðuneytið þessu á næsta ári. Ókei! Allt í lagi. Svo kemur endurskoðuð aðalnámskrá og þá þarf hugsanlega að breyta öllu aftur. Við vinnum því sömu vinnuna tvisvar, þrisvar eða jafnvel oftar. Vegna þess að ráðuneytið er að flýta sér. Við erum svo sem gríðarlega fær í að búa til allskonar úr engu. Copy, paste og það allt saman. Það væri samt ágætt ef einhver í hásætinu myndi ákveða fyrst hvað við eigum eiginlega að búa til. Stórsókn í námsgögnum – hvar eru þau? Svo á að ráðast í stórsókn í námsgagnagerð. Frábært! Kennarar hafa árum saman unnið með úrelt námsefni og búið til eigið efni í stórum stíl. Sjálf kenni ég náttúrugreinar á unglingastigi og þekki þetta vel. Samkvæmt aðgerðaáætluninni á útgáfuáætlun fyrir nýtt náttúrufræðiefni að liggja fyrir árið 2027 og innleiðingin að fara fram síðar. Árið 2027 er eftir tvo mánuði, 11 daga og fjórar klukkustundir. Á meðan höldum við bara áfram að útbúa eigið efni og innleiða framtíðina með verkfærum fortíðarinnar. Gamla góða Almenna stærðfræðin klikkar ekki. Enda góður árgangur þar á ferð, hið blessaða ár 1988! Svo er það hitt sem allir þekkja en fáir ræða. Kennarar deila gjarnan PDF-skjölum og skönnuðum köflum úr bókum sín á milli til að finna og aðlaga efni fyrir nemendur. Slík miðlun brýtur sannarlega á höfundarrétti. En málefnið er svo gott, svo það er nú í lagi? Allt innan fjárheimilda – auðvitað! Í þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 kemur ítrekað fram að verkefni eigi að rúmast innan núverandi fjárheimilda. Það er stórkostlegt hvað þetta orðalag getur leyst mörg vandamál. Það er ákveðinn töframáttur fólginn í því. „Innan fjárheimilda“. Leggið þetta á minnið, látið jafnvel húðflúra það þar sem enginn sér. Í fjárlagafrumvarpi 2027 er nefnilega gert ráð fyrir 380 milljóna króna aukningu til námsgagna og 400 milljóna til stuðnings börnum af erlendum uppruna. Samhliða falla niður tímabundnar fjárheimildir upp á 780 milljónir. Bíðið nú við? 380 + 400 = 780. Ó, svo inn koma 780 milljónir en á móti falla aðrar 780 milljónir niður. Nú, jæja. Aftur kemur Almenna stærðfræðin til bjargar. Og svo eru það elsku bestu sveitarfélögin sem reka grunnskólana og eru vinnuveitendur okkar. Ætla þau í alvöru bara að segja já við þessu öllu og demba verkefnunum á starfsfólkið sitt? Hafa þau reiknað út kostnaðinn í vinnustundum, afleysingum og endurmenntun eða jafnvel veikindum? En við reddum þessu eins og alltaf, er það ekki? Mitt sveitarfélag verður þá líklega ekki sveitarfélag ársins það árið. En kannski má stofna ný verðlaun fyrir sveitarfélagið sem kemur flestum verkefnum fyrir „innan fjárheimilda“. Fleiri mælingar, fleiri skýrslur, meira skrifræði. Matsferill á að hjálpa okkur að greina stöðu nemenda fyrr og betur. Gott mál, mjög gott. En greining leysir ekki vandann ef úrræðin vantar. Og þau vantar. Víða. Ég sat nýlega fund þar sem rætt var um barn sem hefur beðið eftir sérhæfðri þjónustu í rúmlega tvö ár. Tvö ár gott fólk. En það er víst alveg að koma að því svo það er ókei. Svona er þetta víða. Á meðan mæta börn í allskyns vanda í skólann, þau sem treysta sér til, og starfsfólkið gerir sitt besta til að mæta þörfum þeirra. Og já, við megum ekki gleyma fjölskyldunum sem flytja hingað til lands og koma með börnin sín í skólana okkar. Við þurfum víst líka að kenna þeim íslensku, bæ ðe vei. Það rúmast væntanlega líka „innan fjárheimilda“. Við þurfum ekki fleiri kerfi sem segja okkur að börn þurfi aðstoð ef við höfum ekki úrræði til að veita hana. Það væri kannski rosalega sniðugt að mæla árangur í því hversu mörg börn fá raunverulega aðstoð, ekki bara hversu mörg hafa verið mæld? „Kennararnir? Já, þeir voru hérna áðan!“ Ég hef starfað við kennslu og skólastarf um árabil. Ég hef gaman af þróunarstarfi, vil sjá breytingar og vil að nemendur mínir fái bestu mögulegu menntun. En breytingar þurfa að vera framkvæmanlegar. Ég óttast að við verðum mörg sem förum að hugsa okkur að söðla um og leita á nýjan starfsvettvang. Ekki vegna þess að við viljum ekki breytingar, heldur einmitt vegna þess að við viljum geta sinnt starfinu okkar vel. Það væri ákveðið afrek að innleiða nýtt námsmat, nýja aðalnámskrá, ný námsgögn, nýja matsferla og ný upplýsingakerfi – en missa á sama tíma kennarana sem eiga að nota þetta allt. Nánast fullkomið menntakerfi. Bara enginn til að kenna í því. Á meðan reisa menntamálaráðherrar sér minnisvarða í anda appelsínugulu plágunnar. Stórar og miklar yfirlýsingar og metnaðarfullar áætlanir, allt innan fjárlaga. Það er nú aðalatriðið. Ég vil vita hver á að greiða fyrir breytingarnar, hvenær námsgögnin verða tilbúin, hvernig sveitarfélögin ætla að standa undir sínum hluta og hvort einhver hafi yfirhöfuð metið samanlagt vinnuálag allra þessara verkefna á einn lítinn grunnskóla á landsbyggðinni. Það væri ágætis byrjun að klára eina innleiðingu og jafnvel meta hvernig til tókst áður en sautján öðrum er dembt inn í kerfið. Og kannski mætti spyrja kennarana áður en næsta stórsókn hefst. Það gæti reyndar tafið ferlið, svo kannski er öruggara að sleppa því. Þegar öllu er á botninn hvolft eru það ekki námskrárnar, matskerfin eða aðgerðaáætlanirnar sem kenna börnunum. Það eru jú heimilin og blessaðir kennararnir. Börnin læra það sem fyrir þeim er haft. Höfundur er deildarstjóri unglingastigs Reykholtsskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun