Yfirmaður CIA í Moskvu Samúel Karl Ólason skrifar 25. ágúst 2026 14:09 C-17 Globemaster III á flugi yfir Kaliforníu. Flugher Bandaríkjanna Bandarískri herþotu var í morgun lent á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu. Um er að ræða Boeing C-17 Globemaster III sem notuð er til þungaflutninga. Talsmaður forseta Rússlands, sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um flugvélina í morgun og að ekki stæði til að funda með bandarískum erindrekum. Flugferðin vakti því töluverða athygli og furðu.
Uppfært: Nú er komið í ljós að John Ratcliffe, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) var um borð, samkvæmt heimildum CBS News. Hvern hann fór að hitta liggur ekki fyrir. Blaðamaður Financial Times í Kænugarði hefur eftir heimildarmönnum sínum að ráðamenn í Bandaríkjunum hafi beðið Úkraínumenn um að gera ekki langdrægar árásir á Moskvu, Pétursborg og norðurhluta Rússlands í heild í dag. Það samþykktu Úkraínumenn. Scoop @FT: Trump administration officials last week requested that Kyiv not strike Moscow, St Petersburg and nothern regions of Russia with its long range missiles and drones on Monday, Tuesday and Wednesday when the US would send a plane carrying a senior-level official to the…— Christopher Miller (@ChristopherJM) August 25, 2026 Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, var spurður út í flugvélina í morgun og sagðist hann þá ekki hafa neinar upplýsingar um hana. Enn fremur sagði hann ekki standa til að ræða við bandaríska erindreka í vikunni, samkvæmt TASS fréttaveitunni, sem er í eigu rússneska ríkisins. Talið var mögulegt að flugvélin hefði verið notuð til að flytja Jared Kushner, tengdason Donalds Trump, og Steve Witkoff, vin forsetans, sem hafa starfað sem sérstakir erindrekar hans. Þeir hafa áður farið til Rússlands á fund við ráðamenn þar. Viðræður milli ríkjanna um Úkraínustríðið, sem þeir voru að reyna að finna lausn á, hafa ekki skilað árangri. Kushner og Witkoff ferðuðust síðast til Rússlands í janúar. Samkvæmt frétt Reuters var flugvélinni flogið frá Riga í Lettlandi og var henni lent í Moskvu í morgun. 🇺🇸🇷🇺✈️ A video shows a US Air Force C-17 Globemaster III (07-7181) arriving at Vnukovo International Airport near Moscow from Riga this morning. 📍 POV Geolocation: 55.60857, 37.33291@GeoConfirmed @FaytuksNetwork @UAControlMap1/2 pic.twitter.com/e0ey8FY7G5— Zaryon OSINT (@zarGEOINT) August 25, 2026 Fyrst hafði flugvélin þó verið í Andrews-herstöðinni nærri Washington DC en henni var flogið til Riga þann 23. ágúst. Andrews er heimaflugvöllur flugvéla forsetaembættisins.
Rússland Bandaríkin Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira