Færir Selenskí eldflaugateikningar Samúel Karl Ólason og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 24. ágúst 2026 07:52 Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, á lestarpallinum í Kænugarði, þar sem Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, tók á móti honum. Hægra megin á myndinni má sjá Valerí Salúsjní, fyrrverandi yfirherforingja Úkraínu, og núverandi sendiherra Úkraínu í Bretlandi. AP/Henry Nicholls Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, ferðaðist í morgun til Kænugarðs í Úkraínu. Er það hans fyrsta opinbera heimsókn frá því hann tók við embætti í síðasta mánuði en þangað fór hann með teikningar af breskum og frönskum stýriflaugum sem hann ætlar að afhenda Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.
Forsætisráðherrann mun einnig funda með öðrum ráðherrum úr Bandalagi hinna viljugu þjóða sem hafa staðið við bak Úkraínumanna gegn innrásarher Rússa. Heimsóknina ber upp á þjóðhátíðardag Úkraínumanna. Teikningarnar eiga að gera Úkraínumönnum kleift að framleiða eldflaugarnar sjálfir en þær voru hannaðar af Bretum og Frökkum á árum áður. Í Bretlandi heita þær Storm Shadow en þær heita Scalp í Frakklandi. Úkraínumenn hafa sett aukið púður í árásir sínar á rússneskt landsvæði og með slíkum langdrægum flaugum myndi geta þeirra til slíkra árása aukast til muna. Bretar hafa verið meðal dyggustu stuðningsmanna Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Þeir voru fyrstir til að senda Úkraínumönnum bæði vestræna skriðdreka og vestrænar eldflaugar. Úkraínumenn notuðu einnig á dögunum í fyrsta sinn, svo vitað sé, breska dróna til árása í Rússlandi. Ráðamenn í Rússlandi hafa varað Breta við því að stuðningurinn muni hafa afleiðingar. Storm Shadow-eldflaugarnar drífa rúmlega 250 kílómetra. Úkraínumenn hafa þróað sínar eigin stýriflaugar sem kallast Flamingo. Þær drífa bæði lengra en Storm Shadow-flaugarnar og geta borið meira af sprengiefnum. Bresku og frönsku flaugarnar eru þó nákvæmari en þær úkraínsku og eru hannaðar til að granda betur vörðum skotmörkum. Það er að segja, að þær eru betri í að sprengja styrktar byggingar og neðanjarðarbyrgi. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hafði áður samþykkt fyrir rúmum mánuði að Úkraínumenn mættu fá teikningarnar. Burnham mun svo afhenda Úkraínumönnum, eða heimila forsvarsmönnum breska fyrirtækisins MBDA að afhenda Úkraínumönnum, leynilegar teikningar af breskum íhlutum í stýriflaugarnar. Þá munu Úkraínumenn, með aðstoð Frakka samkvæmt frétt Reuters, geta sett upp eigin framleiðslu á eldflaugunum. Macron tilkynnti einnig á dögunum að Frakkar ætluðu að senda flugskeyti í loftvarnarkerfi til Úkraínu. Forsetinn hefur einnig gefið út að Úkraínumenn megi framleiða frönsk flugskeyti sjálfir og þá sérstaklega Aster 30-flugskeyti, sem geta verið notuð til að reyna að skjóta niður rússneskar skotflaugar. Varnarleysi Úkraínumanna gegn þeim er eitt stærsta vandamál þeirra þessa dagana. Vinna að því að framleiða eigin skotflaugar Úkraínumenn hafa lagt mikið púður í að auka á árásir sínar í Rússlandi með sífellt meiri framleiðslu á langdrægum sjálfsprengidrónum og stýriflaugum. Þeir hafa einnig unnið að því að þróa og framleiða eigin skotflaugar. Drónar og stýriflaugar fljúga tiltölulega lágt með jörðu á leið til skotmarka sinna og er hægt að granda þeim með ýmsum leiðum. Skotflaugar fljúga hins vegar hátt til himins eða upp í gufuhvolfið og falla til jarðar á gífurlegum hraða, þar sem þær lenda á skotmörkum sínum. Sjá einnig: Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Rússar myndu eiga mun erfiðara með að verjast skotflaugaárásum Úkraínumanna en þær gætu einnig borið stærri sprengjuodda en drónar og stýriflaugar ráða við. Fyrr á árinu sögðu ráðmenn í Bretlandi frá því að Úkraína og Bretland hefðu gert samkomulag um þróun og framleiðslu skammdrægra skotflauga í Bretlandi. Sjá einnig: Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Samkvæmt yfirlýsingunni eiga skotflaugarnar að geta borið tvö hundruð kíló af sprengiefnum og hæft skotmörk í rúmlega fimm hundruð kílómetra fjarlægð. Verkefninu er einnig ætlað að bæta hergagnaframleiðslu í Bretlandi.
Úkraína Bretland Frakkland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira