Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. ágúst 2026 06:30 Fedorov segir að Úkraínumenn megi ekki leyfa Rússum að „halda lýðræðinu í gíslingu“. epa/Filip Singer Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur kallað eftir því að boðað verði til forsetakosninga í landinu. Hann segir að Úkraínumenn megi ekki láta Rússa „halda lýðræðinu í gíslingu“; frelsið sé ástæða baráttu þeirra yfir höfuð.
Fedorov nýtur mikilla vinsælda í Úkraínu og þúsundir hafa mótmælt uppsögn hans. Vólódimír Selenskí forseti lét Fedorov fara eftir að til ágreinings kom upp á milli hans og yfirhershöfðingjans Oleksandr Syrskyi. Stuðningsmenn Fedorov hafa gert því skóna að sterk staða Fedorov og þáttur hans í afar vel heppnuðum drónahernaði landsins hafi verið nokkurs konar ógn við bæði Selenskí og Syrskyi. Sjálfur sagði Fedorov í myndskeiði sem hann sendi frá sér í gærkvöldi að það væri ekki hægt að ætlast til þess að fólk byggi endalaust við ástand þar sem ákvarðanir væru teknar án útskýringa. Þar sem sum framfaraskref væru stigin en önnur ekki. „Það er sérstaklega hættulegt þegar samfélag upplifir að höfuðástæðan fyrir útnefningu er ekki fagmennska, afrakstur eða geta til að umbreyta landinu, heldur tryggð við kerfið,“ sagði hann. Áskorun Fedorov er sú fyrsta frá því að Rússar hófu innrás sína í Úkraínu árið 2022. Þá var neyðarlögum komið á og engar kosningar hafa farið fram síðan en kjörtímabil Selenskís rann út í maí árið 2024. Úkraínumenn virðast hingað til ekki hafa verið spenntir fyrir því að halda kosningar, enda erfitt að sjá fyrir sér hvernig framkvæmdin yrði. Fjöldi fólks hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín og landið og þá eru stór svæði undir stjórn Rússa. Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að Selenskí myndi hljóta 22,3 prósent atkvæða í fyrri umferð forsetakosninga, Valerii Zaluzhnyi 21,4 prósent atkvæða og Fedorov 13,1 prósent atkvæða. Samkvæmt könnuninni myndi Selenskí hins vegar lúta í lægra haldi fyrir bæði Zaluzhnyi og Fedorov í annar umferð. Zaluzhnyi er fyrrverandi yfirmaður hersins og núverandi sendiherra Úkraínu í Lundúnum. Selenskí hefur einnig verið sakaður um að koma honum frá vegna vinsælda hans meðal almennings.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira