Viðskipti innlent

Bryn­dís Ósk nýr fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bryndís Ósk tekur við af Erni Pálssyni.
Bryndís Ósk tekur við af Erni Pálssyni. Aðsend

Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hún tók til starfa í byrjun ágústmánaðar og starfar fyrstu vikurnar samhliða Erni Pálssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, til að tryggja farsæla yfirfærslu þekkingar og verkefna.

Í tilkynningu kemur fram að Bryndís sé ekki með öllu ókunnug sjávarútvegi, enda alin upp á Höfn í Hornafirði. Hún hafi starfað um árabil sem jökla- og gönguleiðsögumaður og hafi jafnframt um tíma verið umsjónarmaður fjallaleiðsögunámsins á Höfn.

Undanfarin níu ár hefur hún starfað við verkefnastjórnun innan félagasamtaka og byggingargeirans, meðal annars á sviði öryggis- og gæðamála, samningagerðar og verkefna tengdum umhverfisvottunum. Síðast starfaði hún tímabundið sem verkefnastjóri öryggis- og gæðamála hjá Sorpu. Bryndís lauk meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2020 og hefur undanfarin ár stundað meistaranám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst.

„Ég er mjög spennt fyrir starfinu fram undan og hlakka til að kynna mér betur allar hliðar starfseminnar við hlið Arnar, sem er hafsjór þekkingar og reynslu þegar kemur að málefnum smábátaeigenda,“ segir Bryndís í tilkynningu.

Mikilvægur liðsstyrkur

Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir ráðninguna mikilvægan liðsstyrk fyrir samtökin.

„Styrkleikar Bryndísar á sviði verkefnastjórnunar og lögfræði eru mikilvæg viðbót í starf okkar fyrir smábátaeigendur. Þetta er viðamikið umhverfi að setja sig inn í og við erum heppin að hafa tækifæri til að láta reynsluna renna á milli kynslóða hjá þeim Erni og Bryndísi,“ segir Kjartan Páll og þakkar Erni fyrir sín störf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×